Hoppa yfir valmynd
27. júní 2018 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí - desember 2018

Föstudaginn 22. júní síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2018.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 4.700 stk., á meðalverðinu 79 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 20 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 6.120 stk., á meðalverðinu 80 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 20 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 12.800 stk., á meðalverðinu 33 kr./stk.  Hæsta boð var 51 kr./stk. en lægsta boð var 10 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 47 kr./stk.

Fimm umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 244.750 stk. á meðalverðinu 25 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 5 kr./stk. Tilboði var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 118.750 stk. á meðalverðinu 36 kr./stk.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur júlí – desember 2018

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

650

Húsasmiðjan Blómaval

1.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf.

 

Aðrar pottaplöntur júlí- desember 2018

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

860

Húsasmiðjan Blómaval ehf.

1.300

Garðheimar-Gróðurvörur ehf.

 

Tryggðablóm júlí - desember 2018

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

300

Garðheimar-Gróðurvörur ehf.

5.000

Grænn markaður ehf.

1.200

Samasem ehf.

 

(Annars)  afskorin blóm júlí – desember 2018

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

50.000

Blómagallerí hf.

1.084

Garðheimar-Gróðurvörur ehf.

21.687

Grænn markaður ehf

45.979

Samasem ehf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum