Hoppa yfir valmynd
9. mars 2006 Utanríkisráðuneytið

Opinber heimsókn utanríkisráðherra til Noregs

Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, og Anne-Grete Ström-Erichsen, varnarmálaráðherra Noregs
Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, og Anne-Grete Ström-Erichsen, varnarmálaráðherra Noregs

Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, eru í tveggja daga opinberri heimsókn í Noregi, í boði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs.

Heimsóknin hófst með áheyrn hjá Haraldi Noregskonungi í höll konungs í Osló.

Utanríkisráðherra átti hádegisverðarfund með varnarmálaráðherra Noregs, Anne-Grete Ström-Erichsen, þar sem rædd voru öryggis- og varnarmál, m.a. þátttaka ríkjanna og samstarf í friðargæslu, norrænt samstarf á sviði varnarmála o.fl.

Geir H. Haarde og Jonas Gahr StøreSíðdegis átti ráðherra fund með norska starfsbróður sínum, Jonas Gahr Støre. Ræddu þeir samskipti landanna á breiðum grundvelli, meðal annars fiskveiðimál og svæðasamstarf. Farið var yfir stöðu mála á Evrópska efnahagssvæðinu og voru ráðherrarnir sammála um að rekstur EES-samningsins gengi afar vel. Þá ræddu ráðherrarnir framvinda mála í Evrópusambandinu og fyrirhugaða stækkun sambandsins. Rætt var um málefni Atlantshafsbandalagsins og varnar- og öryggismál almennt.

Ennfremur var rætt um framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og reifuð þau mál, sem efst eru á baugi á alþjóðavettvangi um þessar mundir.

Ráðherra átti einnig fund með Torbjørn Jagland, forseta Stórþingsins, og utanríkismálanefnd þingsins.

Í kvöld sitja ráðherrahjónin kvöldverðarboð Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, þeim til heiðurs.

Á morgun verða utanríkisráðherrar beggja landanna viðstaddir stofnun Norsk-íslensks viðskiptaráðs í bústað sendiherra Íslands í Osló. Að því loknu halda ráðherrahjónin til Stavanger þar sem þau munu m.a. heimsækja herstjórnarmiðstöð Atlantshafsbandalagsins. Þá heldur ráðherra erindi um stöðu Íslands í hnattvæddum heimi í hátíðarsal Stavangerháskóla og heimsækir höfuðstöðvar Statoil í Stavanger.

Heimsókninni lýkur annað kvöld með kvöldverði bæjarstjórnar Stavanger utanríkisráðherrahjónunum til heiðurs.



Geir H. Haarde og Jonas Gahr Støre
Geir H. Haarde og Jonas Gahr Støre

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum