Hoppa yfir valmynd
1. júní 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Úthlutun úr starfsmenntasjóði

Starfsmenntaráð
Starfsmenntaráð

Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins, sem starfar skv. lögum nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu, hefur úthlutað vegna ársins 2005 rúmlega 48 milljónum króna úr starfsmenntasjóði til 42 verkefna. Styrkirnir voru einkum veittir til verkefna sem stuðla að auknum tækifærum miðaldra og eldra fólks til starfsmenntunar og verkefna sem auðvelduðu yfirfærslu þekkingar og reynslu innan fyirtækja.

Úthlutun úr Starfsmenntasjóði 2005Meðal þeirra aðila sem hlutu styrk úr hópi “Yfirfærslu þekkingar og reynslu” voru Landspítali – háskólasjúkrahús í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Eflingu – stéttarfélag. Markmið verkefnisins er að hanna módel fyrir yfirfærslu á þekkingu og færni starfsmanna sem búa yfir færni í ákveðnum verkþáttum til þeirra sem hafa minni færni í þeim. Þátttakendur í verkefninu koma frá mismunandi þjóðlöndum, með ólíkan bakgrunn og menningararf.

Meðal þeirra aðila sem hlutu styrk úr hópi “Miðaldra og eldra starfsfólks” voru Framvegis, miðstöð um símenntun í samstarfi við Sjúkraliðafélag Íslands. Markmiðið með Brú sjúkraliðanáms er að auðvelda fullorðnum einstaklingum sem hafa aflað sér tiltekinnar starfsreynslu við umönnun og aðhlynningu á heilbrigðisstofnunum að stunda starfsnám sjúkraliða. Einstaklingum 30 ára og eldri verður gefið nýtt tækifæri til formlegrar menntunar.

Tenging frá vef ráðuneytisinsÚthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins 2005



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum