Hoppa yfir valmynd
5. mars 2021 Utanríkisráðuneytið

Ljósmyndasýning um þróunarstarf í Eþíópíu og Úganda

Ljósmyndasýningin í Smáralind stendur yfir til 14. mars. - mynd

„Samstarf utanríkisráðuneytisins við Hjálparstarf kirkjunnar á sér langa sögu sem grundvallast á víðfeðmri reynslu og starfi samtakanna í þróunarstarfi í fátækari ríkjum heims. Ljósmyndirnar bera vitni um að starf Hjálparstarfs kirkjunnar hefur svo sannarlega borið árangur,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra  við opnun ljósmyndasýningar Hjálparstarfs kirkjunnar í Smáralind.

Ljósmyndirnar sýna þróunarsamvinnuverkefni í Eþíópíu og Úganda en verkefnin miða að því að heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun náist fyrir árið 2030. Ljósmyndirnar tók Þorkell Þorkelsson og sýningin stendur yfir til 14. mars á neðri hæð Smáralindar.

Stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í þróunarsamvinnu er með sárafátæku fólki í Sómalífylki í Eþíópíu. Meginmarkmið verkefnisins eru að bæta aðgengi að drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu, að fólkið geti aukið fæðuöryggi sitt með umhverfisvernd og bættum aðferðum í landbúnaði. Enn fremur að styrkja stöðu kvenna, samfélaginu öllu til farsældar.

Í Úganda rekur Hjálparstarfið verkmenntasmiðjur í fátækrahverfum Kampala í samstarfi við þarlend samtök, Ugandan Youth Development Link. Á hverju ári útskrifast um 500 unglingar með verðmæta reynslu í farteskinu sem eykur möguleika þeirra á að tryggja sér fasta atvinnu og lífsviðurværi.

„Markmið okkar með ljósmyndasýningunni er að veita almenningi innsýn í aðstæður fólksins sem við störfum með á vettvangi og sýna að þróunarsamvinna virkar sem liður í að við náum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar við opnun sýningarinnar. 

Verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþíópíu og Úganda hafa hlotið stuðning frá utanríkisráðuneytinu um árabil í gegnum samstarf ráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
6. Hreint vatn og hreint
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum