Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til gæðaverkefna árið 2006

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir styrki vegna gæðaverkefna í heilbrigðiskerfinu og hefur ráðuneytið ákveðið að framlengja umsóknarfrestinn um tvær vikur, þ.e. til 15. september n.k.

Í styrkumsókn skal m.a. koma fram markmið verkefnisins, framkvæmdaáætlun og hvernig unnt er að nýta niðurstöður til að bæta þjónustuna.

Sótt er um í nafni einstakra stofnana og/eða starfseininga.

Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og í afgreiðslu ráðuneytisins, Vegmúla 3, sími 545 8700.

Umsóknir má senda inn rafrænt eða á pappír. Rafrænar umsóknir skal senda á netfangið postur hjá htr.stjr.is en aðrar umsóknir skal senda á heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Vegmúla 3, 150 Reykjavík.

Gæðastyrkir umsóknareyðublað 2006 (word skjal)

Nánari upplýsingar veitir Margrét Björnsdóttir, deildarstjóri  á áætlana- og þróunarskrifstofu  í síma 545 8700.

Umsóknarfrestur er til 15. september 2006



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum