Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2011 Innviðaráðuneytið

Áætluð úthlutun tekjujöfnunarframlaga áárinu 2011

Innanríkisráðherra  hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 10. nóvember sl. um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2011 á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Áætluð heildarfjárhæð framlaganna nemur um 1.249 milljónum króna.

Í dag koma ¾ hlutar af áætluðu framlagi til greiðslu eða samtals um 936 milljónir króna.  Uppgjör framlaganna  fer fram fyrir áramót á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaganna.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum