Hoppa yfir valmynd
28. október 2021 Matvælaráðuneytið

Ræddu stjórn veiða á norsk-íslenskri síld, kolmunna og makríl ​

Sendinefndir strandríkja við norðaustur Atlantshaf hittust í London í þessari viku til að ræða stjórn veiða árið 2022 á norsk-íslenskri síld, kolmunna og makríl.

Strandríkin voru sammála um að heildarveiðar skuli ekki vera umfram vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og var því samþykkt að setja heildaraflamark sem er 598.588 tonn fyrir síld, 752.736 tonn fyrir kolmunna og 794.920 tonn fyrir makríl.

 

Jafnframt var ákveðið að fela vísindamönnum strandríkjanna að uppfæra samantekt frá 2013 um dreifingu kolmunna og gera sambærilega skýrslu varðandi makríl.

Ekki náðist samkomulag um skiptingu heildaraflans milli strandríkjanna, sem öll eru sammála um að mikilvægt sé að leggja þunga áherslu á að reyna að ná niðurstöðu um það ágreiningsmál. Án slíks samkomulags er ljóst að raunverulegar veiðar verða umtalsvert meiri en sem nemur vísindaráðgjöfinni.

 

Ákveðið var að halda samningafundi um skiptingu veiða í upphafi næsta árs, með það að markmiði að samkomulag geti leitt til sjálfbærra veiða strax árið 2022.

 

Fréttin var uppfærð 28. október kl. 12:55 með upplýsingum um heildaraflamark fyrir makríl. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum