Hoppa yfir valmynd
29. október 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Menningarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2019

Menningarverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í Stokkhólmi í kvöld. Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þingmanna Norðurlandanna og veitir ráðið fimm verðlaun á hverju ári: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og ungmennabókmenntaverðlaun. Markmið verðlaunanna er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál og vekja athygli á verkum og verkefnum sem skarað hafa fram úr.

Bein útsending verður frá verðlaunaafhendingunni kl. 18:30 í kvöld á menningarvef RÚV.

Íslenskar tilnefningar til verðlaunanna eru að þessu sinni:
Barnabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Ragnheiður Eyjólfsdóttir fyrir skáldsöguna Rotturnar og Sigrún Eldjárn fyrir skáldsöguna Silfurlykillinn.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Kristín Ómarsdóttir fyrir ljóðabókina Kóngulær í sýningagluggum og Kristín Eiríksdóttir fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt.
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs: Gyða Valtýsdóttir tónskáld og Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs: Hvítur, hvítur dagur í leikstjórn Hlyns Pálmasonar.
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. Fatamerkið AFTUR.

„Tilnefning til menningarverðlauna Norðurlandaráðs er mikill heiður og við Íslendingar erum stolt af listafólkinu okkar. Það er ánægjulegt að sjá viðurkenningu á því öfluga menningarstarfi sem blómstrar hér á landi og á hinum Norðurlöndunum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sem verður viðstödd verðlaunahátíðina í kvöld.

Verðlaun Norðurlandaráðs eru á meðal virtustu verðlauna Norðurlanda og hljóta jafnan mikla alþjóðlega athygli. Bókmenntaverðlaunin eru elst af verðlaununum fimm en þau voru veitt í fyrsta sinn árið 1962. Fimm dómnefndir sjá um að tilnefna verk og útnefna verðlaunahafana. Verðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í tengslum við 71. þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi þar sem þingmenn, forsætisráðherrar og fleiri ráðherrar auk leiðtoga stjórnarandstöðu frá öllum Norðurlöndunum koma saman og ræða stjórnmál og stefnumótun.

Í fyrra hlutu tveir Íslendingar þessi eftirsóttu verðlaun; Auður Ava Ólafsdóttir fyrir skáldsögu sína Ör og Benedikt Erlingsson fyrir kvikmyndina Kona fer í stríð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum