Hoppa yfir valmynd
25. september 2017 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 40/2017 Úrskurður 21. ágúst 2017

Mál nr. 40/2017                     Millinafn:       Aðdal

 


 

Hinn 21. ágúst 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 40/2017 en erindið barst nefndinni 17. ágúst:

Millinafnið Aðdal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Aðdal uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Aðdal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum