Hoppa yfir valmynd
20. september 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kynning á niðurstöðum könnunar á félagslegri einangrun og einmanaleika eldra fólks eftir uppruna

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stendur fyrir kynningarfundi um niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á líðan eldra fólks af íslenskum og erlendum uppruna en í henni var sérstök áhersla lögð á félagslega einangrun og einmanaleika. Fundurinn verður rafrænn og fer fram mánudaginn 25. september kl. 10:30-11:15.

Þátttakendur tengjast fundinum með því að smella hér

Könnunin var framkvæmd að beiðni ráðuneytisins sem vinnur bæði að framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar Gott að eldast og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.

Á kynningarfundinum tekur Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fyrstur til máls. Að því búnu kynnir Helgi Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, niðurstöðurnar.

Kynningin verður sem fyrr segir rafræn – í beinni útsendingu á Facebook-síðu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins – og er öllum opin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum