Hoppa yfir valmynd
29. janúar 1999 Heilbrigðisráðuneytið

Lyfjaval

Lyfjafréttir

    Lyfjamál 74
    Frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
    og landlækni

    Nú er nokkuð um liðið síðan bókin LYFJAVAL kom út. Til upprifjunar þá er bókin afrakstur samstarfsverkefnis Félags íslenskra heimilislækna, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, landlæknisembættisins og Tryggingastofnunar ríkisins. Í bókinni eru leiðbeinigar um meðferð og notkun lyfja við ákveðnum sjúkdómum eða einkennum. Verkefnið er ennþá í fullum gangi og senn kemur að 2. útgáfu bókarinnar. Að hverjum kafla vinna oftast 2-3 læknar í sameiningu. Unnið er út frá "evidence based medicine" þannig að sú meðferð sem mælt er með er vísindalega studd og vel þekkt og reynd. Lyfjafræðinemar hafa einnig lagt verkefninu lið. Það var ekki ætlunin að svo langt liði á milli áfanga, en af ýmsum orsökum hægðist nokkuð á verkefninu. Í haust og fram eftir vetri var unnið vel og voru yfir 20 kaflar í vinnslu. Í október s.l. var haldinn fundur þar sem læknar kynntu þá kafla sem búið var að vinna og var innihald þeirra rætt og komst hópurinn að samkomulagi um hvernig viðkomandi kafli myndi birtast í Lyfjavalinu. Nú eru 17 kaflar svo gott sem tilbúnir til uppsetningar og prentunar.

    Sigurður Helgason hefur sem fyrr verið aðal driffjöðurin í verkefninu í samvinnu við lyfjafræðing Tryggingastofnunar. Tryggingastofnun vill nota tækifærið og koma á framfæri þakklæti til Sigurðar, og allra þeirra sem að verkefninu hafa komið, fyrir ánægjulegt samstarf. Ákveðið hefur verið að ráða lyfjafræðing tímabundið til starfa, sem eingöngu mun sinna Lyfjavalinu. Með þessu vill stofnunin leggja sitt að mörkum til að verkefnið gangi sem best.

    Verkefni eins og Lyfjaval lýkur aldrei. Nýir kaflar eiga að birtast jafnt og þétt og áður birtir kaflar þurfa reglulegrar endurskoðunar við vegna sífelldra nýjunga. Heyrst hefur frá læknum sem tekið hafa þátt í þessu starfi að það sé mjög ánægjulegt og jafnist á við góða endurmenntun. Hluti af verkefninu er síðan að fylgja bókinni eftir og sjá til þess að hún sé notuð, en rykfalli ekki uppi í hillu. Læknadeild Tryggingastofnunar hefur sýnt í verki áhuga á að koma að verkefninu, bæði hvað varðar vinnslu kaflanna, yfirlestur og eftirfylgni.

    Heilbrigðisyfirvöld gera á hverju ári kröfur um sparnað m.a. í lyfjakostnaði. Lyfjakostnaður kemur ekki til með að lækka hann eykst á hverju ári og aðallega vegna nýrra lyfja sem oftar en ekki eru mjög dýr. Með samstarfi sem þessu þá er unnið að því að nota lyfin, bæði þau gömlu og nýju, á skynsaman og markvissan hátt svo fjármunirnir nýtist sem best. Lyfjaframleiðendur eyða gífurlegum fjármunum í að segja læknum frá kostum nýju lyfjanna. Á síðasta ári voru tvö ný lyf tekin snögglega af markaði vegna hættulegera aukaverkana. Læknar verða því ávallt að vera mjög gagnrýnir á auglýsingar lyfjaframleiðenda

    Upplag Lyfjavalsins er því miður búið, en hægt er að panta bókin hjá Ingu J. Arnardóttur hjá Tryggingastofnun, eða með tölvupósti, netfangið er; ingaja@ tr.is.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum