Hoppa yfir valmynd
3. október 2017 Matvælaráðuneytið

Kristrún Frostadóttir er nýr formaður verðlagsnefndar búvara

Gengið hefur verið frá skipun verðlagsnefndar búvara og er Kristrún M Frostadóttir hagfræðingur formaður nefndarinnar.

Verðlagsnefndin er skipuð 7 einstaklingum og skulu tveir fulltrúar vera tilnefndir af samtökum launþega, tveir af Bændasamtökum Íslands, tveir af Samtökum afurðastöðva í mjólkurframleiðslu auk þess sem ráðherra landbúnaðarmála skipar formaðnn nefndarinnar. 

Samtök launþega, þ.e. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og stjórn Alþýðusambands Íslands hafa ákveðið að nýta ekki rétt sinn til tilnefningar. Samkvæmt lögum féll það því í hlut velferðarráðherra að tilnefna þessa tvo fulltrúa.  

Verðlagsnefnd búvara er þannig skipuð:

  • Kristrún M. Frostadóttir, skipuð af ráðherra
  • Arnar Árnason, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Rögnvaldur Ólafsson, tilnefndur af Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
  • Jóhanna Hreinsdóttir, tilnefnd af Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
  • Þórólfur Geir Matthíasson, tilnefndur af velferðarráðuneytinu
  • Dóra Sif Tynes, tilnefnd af velferðarráðuneytinu

 Einnig hefur ráðherra tilnefnt Októ Einarsson sem fulltrúa minni vinnslufyrirtækja mjólkur sem áheyrnarfulltrúa í nefndina og skal hann hafa tillögurétt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum