Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2022 Innviðaráðuneytið

Þjónusta samræmd og efld með flutningi fasteignaskrár til HMS

Verkefni tengd fasteignaskrá og fasteignamati verða flutt frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Markmiðið er að einfalda og efla þjónustu við fólk og fyrirtæki á sviði húsnæðismála og tryggja enn frekari samhæfingu milli ríkisstofnana og sveitarfélaga. Þjóðskrá Íslands mun áfram veita öfluga þjónustu við skráningu einstaklinga. Breytingarnar voru kynntar í dag á fundum með starfsfólki stofnananna, en unnið verður að útfærslu þeirra í nánu samstarfi stofnananna. Engar uppsagnir verða í tengslum við þessi umskipti og starfsstöðvar utan höfuðborgarsvæðisins áfram starfræktar.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra

„Við viljum stöðugt bæta þjónustu við samfélagið og með því að færa fasteignaskrána til HMS getur fólk nú leitað á einn stað með erindi tengd fasteigum og húsnæðismálum. Með þessum breytingum er stigið stórt skref til að samhæfa og einfalda þjónustu á vegum hins opinbera á sviði húsnæðismála. Tilgangurinn er að auka yfirsýn til að gera stjórnvöldum kleift að gera markvissari aðgerðir til að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði. Þjóðskrá Íslands gegnir mikilvægu hlutverki eftir breytingarnar og þar starfar öflugt fagfólk, sem mun taka þátt í að efla enn frekar þjónustu á vegum stofnunarinnar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson.

Hermann Jónasson, forstjóri HMS

„Við hlökkum til að eiga gott samstarf við Þjóðskrá um að taka við mikilvægum verkefnum sem tengjast okkar kjarnaþjónustu. Verkefni okkar verður að samþætta verkefni, einfalda þjónustuferla og veita afbragðs þjónustu til allra þeirra sem til okkar leita. Í þessum breytingum eru skýr sóknarfæri til að bæta þjónustu á þessu mikilvæga sviði,“ segir Hermann Jónasson.

Aðalsteinn Þorsteinsson, starfandi forstjóri Þjóðskrár

„Þjóðskrá Íslands mun áfram veita öfluga þjónustu við skráningu einstaklinga í grunnskrám landsins. Breytingarnar veita okkur tækifæri til að skilgreina hlutverk okkar með skýrum hætti með skýrari skilum milli stofnana. Við sjáum mikil tækifæri í að veita sérhæfða þjónustu á okkar sviði auk tækifæra til að takast á hendur ný og veigamikil verkefni,“ segir Aðalsteinn Þorsteinsson. 

Nánar um breytingarnar

Öll starfsemi sem nú heyrir undir Fasteignasvið Þjóðskrár – fasteignaskrá, fasteignamat og útreikningur á álagningu sveitarfélaga – mun flytjast yfir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og sameinast starfsemi tengdri mannvirkjaskrá. Ýmis verkefni á stoðþjónustusviðum Þjóðskrár færast einnig yfir, s.s. á sviði hugbúnaðarþróunar, reksturs, gagna og sérvinnslu, þjónustu og eða sölu, sem snýr að fasteignaskrá og tengdum skrám, enda órjúfanleg heild í starfseminni.

Rúmlega 100 manns vinna hjá Þjóðskrá Íslands en nærri helmingur þeirra vinnur að verkefnum tengdum Fasteignasviði.

Samstarf um breytingar

Skipaður hefur verið stýrihópur um útfærslu breytinganna þar sem starfsfólk beggja stofnana mun eiga samvinnu um yfirfærslu verkefna. Engar uppsagnir verða í tengslum við þessi umskipti. Báðar stofnanir reka öflugar starfsstöðvar í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins og þær verða starfræktar áfram. 

Innviðaráðherra leggur fram frumvarp um nauðsynlegar breytingar á lögum á vorþingi. Við gildistöku þeirra taka breytingarnar formlega gildi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum