Hoppa yfir valmynd
14. mars 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum á árinu 2022.

Markmið styrkjanna er að fjölga nemendum í raunvísindum og stærðfræði. Heildarfjárhæð styrkja á árinu 2022 er allt að 7,5 m.kr. og eru styrkirnir veittir til að standa straum af ferðakostnaði vegna þátttöku í keppnunum.  

Ef umsóknaraðili hefur áður fengið styrk þá þarf hann að hafa skilað greinargerð um hvernig styrknum var ráðstafað. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir aðra sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Umsóknir skulu sendar til [email protected] í síðasta lagi föstudaginn 1. apríl 2022.

Nánari upplýsingar veitir Ásta María Reynisdóttir hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu: [email protected] / 545-9500.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum