Hoppa yfir valmynd
7. september 2015 Forsætisráðuneytið

34. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög
  3. Önnur mál

Fundargerð

34. fundur – haldinn mánudaginn 7. september 2015, kl. 15.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Katrín Jakobsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir.

Valgerður Gunnarsdóttir, Jón Kristjánsson og Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 33. fundar, sem haldinn var mánudaginn 24. ágúst 2015, var samþykkt án athugasemda.

2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög

Fjallað var um drög að greinargerð frá sérfræðingahópi um auðlindaákvæði. Þá var farið yfir helstu atriði sem enn er skoðanamunur um. Ákveðið var að formaður geri tillögu að ákvæðum sem farið verður yfir á næsta fundi nefndarinnar þann 21. september nk.

3. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.00.

OÞV ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum