Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 34/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. janúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 34/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19100036

Kæra [...]

og barna hans

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 8. október 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 18. september og 20. september 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans og barna hans, [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A), og [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kæranda og barna hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi og börn hans lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. júlí 2019 ásamt [...]. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu, m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 2. ágúst 2019 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 3. september 2019 kom fram að kæranda, A og B hefði verið veitt viðbótarvernd þann 10. janúar 2018 og væru með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 22. janúar 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 8. ágúst 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þá kom A til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 19. ágúst s.á., ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 18. og 20. september 2019 að taka ekki umsóknir kæranda og barna hans um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda þann 24. september 2019 og kærði hann ákvarðanirnar þann 8. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, bárust kærunefnd þann 17. október 2019. Viðbótargögn bárust þann 16. janúar 2020.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að honum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A og B kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli föður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja föður sínum til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í sameiginlegri greinargerð fjölskyldunnar kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann sé kvíðinn yfir þeirri stöðu sem fjölskyldan sé í og vegna þeirrar [...] sem A glími við. Þá hafi kærandi greint frá því að hann gæti ekki farið aftur til Grikklands þar sem fjölskyldan hafi búið við ómannúðlegar aðstæður þar í landi. Í flóttamannabúðunum þar sem þau bjuggu hafi verið mikið um ofbeldi, eiturlyf og sjálfsvíg. Lögreglan hafi jafnvel beitt flóttafólk ofbeldi. Þá hafi innfæddir sýnt flóttafólki mikla fordóma. Einnig hafi kærandi greint frá því að það hafi reynst honum ómögulegt að fá skattnúmer í Grikklandi og því hafi hann neyðst til að leita að stopulli íhlaupavinnu á svarta markaðnum sem lítið hafi verið um. Vegna lítillar atvinnu og takmarkaðrar framfærslu frá Sameinuðu þjóðunum hafi fjölskyldan verið í fjárhagsvandræðum í kjölfar þess að [...], en hann hafi sent þeim pening þegar hann gat. Þá hafi kærandi greint frá því að afar takmarkað aðgengi hafi verið að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi þrátt fyrir þörf fjölskyldunnar fyrir heilbrigðisþjónustu. Þá kemur fram að barn kæranda, A, hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá afar takmarkaðri skólagöngu sinni í Grikklandi. Hún hafi mætt í innréttaðan gám í flóttamannabúðunum og teiknað þar myndir með öðrum börnum.

Í greinargerð kæranda er vísað til umfjöllunar í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar um aðstæður flóttamanna í Grikklandi. Þar kemur m.a. fram að hatursglæpir gagnvart einstaklingum með alþjóðlega vernd í Grikklandi séu algengir og að stjórnvöld hafi ekki brugðist nægilega við þeim. Auk þess séu lögreglumenn oft gerendur í slíkum málum eða hafa orðið uppvísir að því að veita þeim einstaklingum ekki næga vernd. Þá vísar kærandi einkum til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi lögum samkvæmt rétt á heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, atvinnu og húsnæði en það skorti á að lögunum sé framfylgt og fólk fái raunverulega ekki notið þeirra réttinda.

Þá telur kærandi að fjölskyldan í heild sinni séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga m.a. í ljósi þess að A sé með [...] og [...]. Telji kærandi að vegna langvarandi skerðingar A á [...] auk þeirra hindrana sem á vegi hennar hafa orðið og munu verða, teljist A vera fatlaður einstaklingur samkvæmt 2. tölul. 2. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, sbr. 2. mgr. 1. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Þá vísar kærandi til þess að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Í greinargerð kæranda kemur jafnframt fram að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa ávallt það sem barni er fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess og sé það A og B fyrir bestu að íslensk stjórnvöld taki mál þeirra til efnismeðferðar hér á landi.

Í greinargerð kæranda eru gerðar nokkrar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, m.a við þær fullyrðingar um að kæranda og börnum hans standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi, að þau njóti réttar til að sækja þjónustu úr félagslegu kerfi landsins og fái þar nauðsynlega aðstoð. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar um að lögregluyfirvöld í Grikklandi skorti hvorki getu né vilja til að vernda flóttafólk. Kærandi vísi í því sambandi til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar um aðstæður flóttafólks í Grikklandi. Telur kærandi að í hinum kærðu ákvörðunum sé litið til lagalegs réttar flóttafólks framyfir raunverulegt aðgengi að lögvörðum réttindum. Kveði kærandi að stofnunin vísi til skráningar hatursglæpa og máttlausra viðbragða yfirvalda sem svar við þeim fordómum sem flóttafólk upplifi frá lögreglu og almenningi. Auk þess líti stofnunin framhjá þeim raunveruleika sem langflest flóttafólk búi við í Grikklandi og sem heimildir kveði á um. Þá eru gerðar athugasemdir við umfjöllun Útlendingastofnunnar um möguleika A og B á að ganga í skóla í Grikklandi. Þar vísi Útlendingastofnun með öðrum orðum aðeins til lagabreytinga og hins formlega aðgangs flóttabarna að námi en ekki raunverulegrar menntunar þeirra. Loks telji kærandi að við mat á mögulegri endursendingu þeirra til Grikklands beri að tryggja vandaðan og einstaklingsbundinn rökstuðning.

Krafa kæranda er í fyrsta lagi byggð á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laganna, sbr. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sbr. lög nr. 62/1994. Íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement), sbr. framangreind lagaákvæði. Muni kærandi standa frammi fyrir ómannúðlegum og vanvirðandi aðstæðum í Grikklandi. Telji kærandi að túlkun íslenskra stjórnvalda á fordæmum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng þegar komi að fyrrgreindri grundvallarreglu og vísi í því sambandi til tiltekinna dóma Mannréttindadómstóls Evrópu. Þá telji kærandi að við endursendingu þeirra til Grikklands muni lífsgæði þeirra ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör þeirra ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Vísi kærandi til þess að þau hafi fullnýtt rétt sinn til búsetu í flóttamannabúðunum og til framfærslu. Þeim muni því hvorki standa til boða húsnæði né framfærsla. Þá hafi honum verið ómögulegt að finna sér löglega atvinnu í Grikklandi og hann hafi lent í miklum erfiðleikum með að verða sér úti um nauðsynlegar skráningar. Þau hafi fengið lágmarksheilbrigðisþjónustu, að mestu innan flóttamannabúðanna, en sú þjónusta muni ekki standa þeim til boða verði þeim snúið aftur til Grikklands. Þá hafi þau upplifað fordóma og ofbeldi í Grikklandi. Við endursendingu til Grikklands muni þau búa við heimilisleysi. Þörf þeirra fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Því beri að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferða umsókna um alþjóðlega vernd. Kærandi telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga hafnar kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá vísar kærandi til þess að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærandi telur að A og fjölskyldan í heild sinni séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að fjölskyldan hafi átt mjög erfitt uppdráttar í Grikklandi, m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífst gagnvart flóttafólki. Hin alvarlega mismunun birtist m.a. í fordómum grísks samfélags, samansafni þeirra fjölmörgu reglna sem geri flóttafólki nær ómögulegt að nálgast lífsnauðsynlega þjónustu í Grikklandi, skorti á aðstoð og fræðslu grískra stjórnvalda sem og þeirri útilokun sem þau verða fyrir frá menntun og atvinnuþátttöku, m.a. vegna tungumálaerfiðleika. Að öllu þessu virtu telur kærandi að ekki sé hægt að jafna stöðu þeirra við stöðu almennings í Grikklandi. Þá vísi kærandi til þess að í Grikklandi hafi þau ekki það net fjölskyldu og vina sem grískur almenningur hefur til að lifa af við það ástand sem þar ríki nú um mundir. Kærandi vísar einnig til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018 þar sem það hafi verið niðurstaða kærunefndar að taka til efnismeðferðar umsóknir fjölskyldu sem fengið höfðu alþjóðlega vernd í Grikklandi vegna sérstakra ástæðna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefndin hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda og A hjá Útlendingastofnun og gögn um heilsufar, þ. á m. hvað varðar A. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A og B sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A og B verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A og B eru í fylgd föður síns og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var kæranda og börnum hans veitt viðbótarvernd í Grikklandi þann 10. janúar 2018 og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 22. janúar 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi og börn hans njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára karlmaður með [...] sem eru [...] og [...] ára. Fjölskyldan kom hingað til lands ásamt [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvað kærandi móður barna sinna hafa orðið eftir í [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera við góða andlega heilsu. Þó greindi kærandi frá erfiðri lífsreynslu í heimaríki sem hefði haft áhrif hann, kvaðst kærandi hafa verið beittur ofbeldi og frændi hans myrtur. Bróðir hans sem hafi orðið eftir í [...]. Kvaðst kærandi vera stressaður vegna þessara atburða. Samkvæmt gögnum um heilsufar kæranda er hann almennt heilbrigður.

Í þeim gögnum sem liggja fyrir um heilsufar A, þ.e. gögn frá [...] dags. 12. ágúst til 2. október 2019, kemur fram að hún sé almennt heilbrigð en með[...] sem lýsir sér í því að [...]. Þá hafi hún [...] og farið í aðgerð. Hún fái smá verk þegar hún [...] en ekki alltaf. Ekki er að sjá af gögnum máls að A hafi þurft á einhverri sérstakri heilbrigðisþjónustu að halda hér á landi vegna þessa. Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í máli fjölskyldunnar með tölvupósti dags. 3. janúar 2020, sem var jafnframt ítrekaður bæði þann 10. og 16. janúar sl., en engin frekari gögn bárust um A. Þá kemur einnig fram í heilsufarsgögnum A að hún sé lág í járni. Fram kemur m.a. í gögnum um heilsufar B að hún sé með járnskort og skort á D-vítamíni. Hún hafi fengið ávísað járnmixtúru vegna þessa og kærandi og [...] hafi fengið ráðleggingar varðandi matarræði hennar.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);• Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 2020).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veita einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í skýrslu Asylum Information Database, kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það þá kemur fram að einungis rúmlega helmingur barna á flótta sækir skóla í Grikklandi. Er ástæðan fyrir þessu m.a. rakin til tungumálahindrana og þess að námið hentar ekki endilega börnum á flótta í Grikklandi.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Þá er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn endursendingu kæranda og barna hans til Grikklands. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barna hans um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi og börn hans njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda og barna hans, en meðal annars hefur komið fram að A sé með [...]. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi og börn hans eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi og börn hans hafi aðgang að viðhlítandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi ef á þarf að halda. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að þau glími við alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, en í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í málum kæranda og barna hans er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu.

Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málum þeirra þar sem hann hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Þá hafi þau upplifað fordóma þar í landi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þá má einnig ráða að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum rétt til menntunar fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið eigi þau rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem hann og börn hans eiga að lögum rétt á og þurfa á að halda. Af gögnum málsins má jafnframt ráða að börn kæranda njóti umönnunar föður síns sem geti sinnt hagsmunum þeirra og veitt þeim þá vernd og stuðning sem þau þarfnast. Þá má jafnframt ráða af gögnum máls, m.a. frásögn kæranda og af gögnum frá Göngudeild sóttvarna, að [...], sem er stödd með þeim hér á landi, sé til staðar fyrir þau og aðstoði kæranda við umönnun barnanna.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi getur leitað ásjár grískra yfirvalda verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt og barna sinna geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Eins og að framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að félagsþjónustu á vegum gríska ríkisins og grískir ríkisborgarar. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi og börn hans muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið er kærandi og börn hans handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til ársins 2021. Þá hafa þau dvalið í Grikklandi í um tvö ár og komu hingað í sameiningu. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málsins að flutningur kæranda og barna hans muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kæranda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurðar í máli nr. 393/2018 tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurði enda séu einstaklingsbundnar aðstæður þeirra ólíkar, en t.a.m. var þar um að ræða barnmarga fjölskyldu, einn kærenda var barnshafandi og gögn málsins bentu til þess að foreldrarnir ættu við andlega erfiðleika að stríða. Það var mat kærunefndar að aðstæður fjölskyldunnar væru slíkar að þeim yrði það vandkvæðum bundið að sækja rétt hjá grískum stjórnvöldum sem þau ættu lagalegt tilkall til.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 8. ágúst 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að kærandi eða börn hans hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kæranda og barna hans þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 26. júlí 2019. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum. Ljóst er af gögnum málanna að ákvæðið eigi ekki við um kæranda og börn hans enda séu ekki liðnir 10 mánuðir frá því umsóknir þeirra bárust íslenskum stjórnvöldum.

Athugasemdir kæranda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem áður hefur komið fram gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á þeirri þjónustu sem standi kæranda og börnum hans til boða í viðtökuríki. Þá gerir kærandi einnig athugasemd við lagastoð og beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kæranda og barna hans og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málunum byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að það sé mat nefndarinnar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málanna og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd þann 26. júlí 2019. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barna hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda og börnum hans því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að þau hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Áslaug Magnúsdóttir

Árni Helgason Þorbjörg Inga Jónsdóttir 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum