Hoppa yfir valmynd
20. desember 2023 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarafurðum frá Bretlandi fyrir tímabilið janúar til desember 2024

Mánudaginn 4. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi samkvæmt reglugerð nr. 1175/2023 fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2024.

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 54.000 kg. á meðalverðinu 457 kr./kg. Hæsta boð var 900 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 19.000 kg. á jafnvægisverðinu 700 kr./kg.

Ostur og ystingur úr vörulið úr 0406;(**). Sex umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið úr 0406(**) samtals 53.350 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1175/2023 er tollkvóta úr vörulið ú r0406(**) úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 11.000 kg., til sex fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Annað kjöt, unnið eða varið skemmdum- í vörulið 1602. Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 33.300 kg. á meðalverðinu 315 kr./kg.  Hæsta boð var 650 kr./kg. en lægsta boð var 2 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 18.300 kg. á jafnvægisverðinu 201 kr./kg.

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

4.000

Aðföng

15.000

Danól ehf

 

Ostur og ystingur úr 0406 (**)

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

2.750

Danól ehf

1.650

Innnes ehf

1.650

Krónan ehf

1.650

LL42 ehf

1.650

Mata ehf

1.650

OJK Ísam ehf

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

16.000

Danól ehf

2.300

Innnes ehf

 

Reykjavík, 14. desember 2023

Matvælaráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum