Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2020 Utanríkisráðuneytið

Flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur ákveðið flutninga forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni. Var ákvörðun utanríkisráðherra tilkynnt viðkomandi þann 11. mars sl. Um er að ræða breytingar á fimm sendiskrifstofum. Þær fela ekki í sér skipun nýrra sendiherra heldur er eingöngu um flutninga núverandi sendiherra og sendifulltrúa að ræða.

Kristján Andri Stefánsson, sem gegnt hefur stöðu sendiherra Íslands í París, verður sendiherra í Brussel og Gunnar Pálsson, sem gegnt hefur stöðu sendiherra þar, kemur til starfa í ráðuneytinu. Unnur Orradóttir, sem gegnt hefur stöðu sendiherra Íslands í Kampala, verður sendiherra í París, og tekur Þórdís Sigurðardóttir, sendifulltrúi, við af Unni sem forstöðumaður sendiráðsins í Kampala. Guðmundur Árni Stefánsson, sem gegnt hefur stöðu sendiherra Íslands í Nýju-Delí, verður aðalræðismaður Íslands í Winnipeg. Tilkynnt verður um hver tekur við forstöðu í Nýju-Delí síðar.

Áður hafði verið tilkynnt um flutninga sem varða sendiráðin í Moskvu, Helsinki og Stokkhólmi. 

Venju samkvæmt eru breytingar á skipan forstöðumanna sendiskrifstofa tilkynntar með fyrirvara um samþykki viðkomandi gistiríkis. Almennt er miðað við að framangreindar breytingar taki gildi 1. júlí en allir flutningar í utanríkisþjónustunni sumarið 2020 verða framkvæmdir með hliðsjón af aðstæðum sem fyrir hendi eru í gistiríkjum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum