Hoppa yfir valmynd
13. desember 2021 Utanríkisráðuneytið

Aukinn kostnaður við heilbrigðisþjónustu fjölgar sárafátækum

Ljósmynd: UNICEF/ Ismail Taxta - mynd

Sameinuðu þjóðirnar telja að rúmlega hálfur milljarður manna í heiminum búi nú við sárafátækt eða enn meiri örbirgð vegna kostnaðar við heilbrigðisþjónustu af völdum COVID-19. Óttast er að heimsfaraldurinn stöðvi eða snúi við þeim framförum sem orðið hafa í útbreiðslu almennrar heilbrigðisþjónustu í heiminum.

Þetta kemur fram í frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) með tilvísun í tvær skýrslur sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og Alþjóðabankinn gáfu út í gær, á alþjóðlegum degi heilbrigðisþjónustu í þágu allra og sýna glögglega afleiðingar COVID-19 á aðgang að heilbrigðisþjónustu og greiðslu fyrir hana.

Í ávarpi á alþjóðadeginum sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna að nú þegar þriðja ár heimsfaraldursins færi í hönd væri brýnt að „efla heilbrigðiskerfi okkar til að tryggja jöfnuð, þanþol og getu til að mæta þörfum allra, þar á meðal á sviði geðheilbrigðis.“ Hann bætti við að „höggbylgjur heilbrigðisvárinnar hafi komið harðast niður á þeim ríkjum sem skortir heilbrigðiskerfi sem geta útvegað gæðaþjónustu á viðráðanlegu verði fyrir alla.“

Hann benti einnig á að ef ná ætti markmiðum um að allir jarðarbúar nytu góðs af heilbrigðisþjónustu fyrir árið 2030, þyrftu ríkisstjórnir að skuldbinda sig til að fjárfesta í og efla þær lausnir sem hefðu þegar sannað sig. „Ójöfn dreifing COVID-19 bóluefnis undanfarið ár er siðferðisbrestur á heimsvísu. Við verðum að læra af reynslunni. Heimsfaraldrinum lýkur ekki í einu einasta landi fyrr en hann er upprættur alls staðar,“ sagði Guterres.

Í frétt UNRIC segir að árið 2020 hafi heimsfaraldurinn leikið heilbrigðiskerfi víðast hvar grátt. Margt hafi setið á hakanum og sem dæmi eru nefnd að dregið hafi úr almennum bólusetningum í fyrsta skipti í tíu ár og dauðsföllum af völdum berkla og mýrarköldu (malaríu) hafi fjölgað.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum