Hoppa yfir valmynd
10. október 2007 Innviðaráðuneytið

Góður gangur í lokahnykknum við Grímseyjarferju

Unnið er nú við lokahnykkinn í endurbótum á nýrri Grímseyjarferju. Kristján L. Möller samgönguráðherra kynnti sér stöðu verksins í gær þegar hann heimsótti Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði.

Samgönguráðherra kynnir sér stöðuna varðandi Grímseyjarferjuna.
Samgönguráðherra kynnir sér stöðuna varðandi endurbætur á Grímseyjarferjunni.

Ráðherra segist ekki sjá annað en verkinu miði vel og segir um 20 manns starfa við það hörðum höndum sex daga vikunnar. Ný verkefnisstjórn tók fyrir nokkru við umsjón verksins og hefur hún haldið allmarga verkfundi. Til stendur að funda með fulltrúum Grímseyinga á næstunni.

Gert er ráð fyrir að Vélsmiðjan skili ferjunni í lok nóvember en þá verður enn eftir að ganga frá ýmsum atriðum og því ekki fullljóst hvenær skipið verður klárt til siglinga á Grímseyjarleiðinni. Vonir standa til að það verði í byrjun ársins.

Kristján L. Möller samgönguráðherra er hér með forráðamönnum Orms og Víglundar, þeim Guðmundi Helga Víglundssyni (í miðið) og Eiríki Ormi Víglundssyni.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum