Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Úttekt á heilsugæsluþjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Landlæknisembættið hefur skilað til heilbrigðisráðuneytisins úttekt á heilsugæsluhluta Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS). Ráðuneytið óskaði eftir úttektinni í febrúar síðastliðnum.

Íbúar á Suðurnesjum hafa komið á framfæri óánægju með skerðingu á þjónustu HSS í kjölfar kröfu um sparnað í rekstri stofnunarinnar. Hafa þeir mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði kröftuglega, m.a. með þúsundum undirskrifta, haldið borgarafundi og vakið athygli á áhyggjum sínum í fjölmiðlum. Er það niðurstaða úttektar landlæknis að heilsugæslan bjóði íbúum svæðisins að mörgu leyti góða þjónustu, en hún glími við mikinn vanda varðandi mönnun á stöðum heilsugæslulækna – sem leiði aftur til óánægju íbúa vegna langs biðtíma eftir viðtali.

Telur landlæknir að með breyttum áherslum í þjónustu og lokun skurðstofa sé mögulegt að færa fjármagn frá sjúkrahúshluta stofnunarinnar til grunnþjónustu heilsugæslunnar og nauðsynlegrar sérfræðiþjónustu. Með þessu sé megi betur koma til móts við nærsamfélagið, sem hafi mikla þörf fyrir góða grunnþjónustu – m.a. vegna fjölgunar íbúa og fjölda atvinnulausra. Til að þetta megi vera þurfi að líta heildrænt til þjónustu Landspítalans og Kragasjúkrahúsanna hvað varðar skurðaðgerðir. Ennfremur þurfi að taka skipulag HSS til gagngerrar endurskoðunar, þar sem tryggt verði að heilsugæslan verði kjölfestan í starfi stofnunarinnar.

Þá er það niðurstaða landlæknisembættisins að HSS hafi vilja og möguleika til að veita öfluga og góða grunnþjónustu fyrir íbúana í þeirra nánasta umhverfi, þrátt fyrir skert fjárframlög til stofnunarinnar.

Niðurstöður úttektarinnar voru ræddar á fundi fulltrúa heilbrigðisráðuneytisins, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og sveitarstjórnafólki fyrr í vikunni.

Úttekt landlæknis á heilsugæsluþjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, apríl 2010.
(pdf 1,4 GB – opnast í nýjum glugga)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum