Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 168/2021 Úrskurður 16. desember 2021

 

 

 

Mál nr. 168/2021                  Eiginnafn:     Mín (kvk.)

 

Hinn 16. desember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 168/2021 en erindið barst nefndinni 23. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í þessu máli reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan um að eiginnafn skuli ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samansafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Eiginnafnið Mín er leitt af eignarfornafninu mín, en engin hefð er fyrir því að eiginnöfn séu mynduð á þennan hátt. Eiginnafnið Mín uppfyllir þar af leiðandi ekki öll skilyrði 5. gr. laganna og því er ekki mögulegt að fallast á það.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mín (kvk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum