Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Íslenskur stuðningur við skapandi greinar og menningarlíf í Beirút

Unnur Orradóttir Ramette sendiherra og Ernesto Ottone aðstoðarforstjóri UNESCO. - mynd

„Sköpun, menning og listir skipta hvert samfélag miklu máli,“ segir Unnur Orradóttir-Ramette, sendiherra Íslands í Frakklandi og fastafulltrúi hjá UNESCO, eftir undirritun samnings milli Íslands og menningarstofnunar um fjárstuðning við skapandi greinar menningarlíf í Beirút. „Við erum sannfærð um að þetta framlag, fimmtán milljónir íslenskra króna, hjálpi Beirútbúum við að endurlífga menningarlífið með þjálfun og endurbótum eftir sprenginguna miklu í ágúst,“ segir hún. 

Framlag Íslands verður notað til að styðja við bakið á listamönnunum sjálfum og menningarsamtökum með stofnun þjálfunaráætlunar í leiklist, sviðslistum, tónlist og kvikmyndum. Þar að auki kemur það að gagni við endurreisn skemmdra listaverka eftir líbanska listamenn.

„Á meðal þeirra svæða sem urðu eyðileggingu að bráð voru samfélög og miðstöðvar hins skapandi hagkerfis borgarinnar, Menningarlíf og sköpun eru þungamiðja í því að endurreisa þolgóð samfélög. Þetta fjárframlag greiðir götuna fyrir því markmiði,“ segir Ernesto Ottone aðstoðarforstjóri UNESCO í frétt á vef stofnunarinnar.

UNESCO hefur hleypt af stokkunum svokölluðu LiBeirut initiative frumkvæði sem miðar að því að styðja endurreisn borgarinnar í formi mennta og menningar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum