Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2015

Merki Kuðungsins - mynd

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2015.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

2014 – Landspítalinn

2013 –  Kaffitár 

2012 –  Íslenskir fjallaleiðsögumenn

2011 –  Náttúran.is

2010 –  Farfuglaheimilin í Reykjavík

2009 - Oddi  

2008 -  Íslenska Gámafélagið.

2007 -  Sólarræsting.

2006 -  Bechtel.

2005 - Línuhönnun.

2004 -  Orkuveita Reykjavíkur.

2003 -  Hópbílar.

2002 -  Árvakur.

2000 - Íslenska álfélagið.

1999 - Borgarplast.

1998 - Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi.

1997 - Olíufélagið.

1996 - Fiskverkun KEA í Hrísey.

1995 - Prentsmiðja Morgunblaðsins.

1994 - Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði.

Í úthlutunarnefnd Kuðungsins fyrir árið 2015 sitja Ásborg Arnþórsdóttir formaður, skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra, Kristinn Þorsteinsson fyrir félagasamtök á sviði umhverfismála, Heimir Janusarson fyrir Alþýðusamband Íslands og Sigurður Ágústsson fyrir Samtök atvinnulífsins.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 23. mars n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum