Hoppa yfir valmynd
20. október 2004 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 20. október 2004

Þann 20. október 2004, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsnæði Orðabókar Háskólans, Nesvegi 16, Reykjavík.

Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 79/2004

Eiginnafn: Nikíta (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Í tilefni af ofangreindri umsókn gerði mannanafnanefnd ítarlega athugun á notkun eiginnafnsins Nikíta í öðrum löndum. Á grundvelli þeirrar athugunar verður kvenmannsnafnið Nikíta tekið á mannanafnaskrá. Nikíta tekur eignarfallsendingu (Nikítu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Nikíta er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 80/2004

Eiginnafn: Lingný (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Lingný tekur eignarfallsendingu (Lingnýjar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lingný er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 81/2004

Millinafn: Matt

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Matt telst uppfylla ákvæði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannnöfn. Beiðni um millinafnið Matt er því samþykkt.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Matt er samþykkt og verður það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 82/2004

Eiginnafn: Elvin (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Elvin tekur eignarfallsendingu (Elvins) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Elvin er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 83/2004

Eiginnafn: Ganagane (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins dags. 28. september 2004 var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um eiginnafnið Ganagane.

Nafnið Ganagane telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Ganagane er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ganagane er hafnað.

Mál nr. 84/2004

Eiginnafn: Eline (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins dags. 13. október 2004 var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um eiginnafnið Eline.

Nafnið Eline telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Eline er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eline er hafnað.

Mál nr. 85/2004

Eiginnafn: Gret (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Gret tekur eignarfallsendingu (Gretar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttur eiginnafnsins Grét.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gret er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá sem ritháttur eiginnafnsins Grét.

Mál nr. 86/2004

Eiginnafn: Amelia (kvk.)



Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Amelia telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Amelia er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Amelia er hafnað.

Fleira ekki gert, fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum