Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 417/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 417/2022

Miðvikudaginn 23. nóvember 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 17. ágúst 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 771.557 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. ágúst 2022. Með bréfi, dags. 18. ágúst 2021, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 12. september 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. september 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærð sé niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta á árinu 2021.

Vegna mistaka hafi komið inn á skattskýrslu sambýlismanns kæranda endurtekin arðgreiðsla frá árinu áður en ekki hafi verið greiddur út neinn arður árið 2021. Kærandi vísar til hlutafjármiða vegna eigna og tekna ársins 2020 og 2021. Óskað hafi verið eftir leiðréttingu hjá skattinum vegna þess.

Greiðsluseðlar verði greiddir þar til þetta hafi verið leiðrétt og þá verði óskað eftir endurgreiðslu.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljast tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé Tryggingastofnun ríkisins heimilt þegar einstaklingur leggi inn nýja umsókn um bætur frá stofnuninni að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað sé að aflað verði eftir að bótaréttur stofnist. Unnt sé að beita heimild þessari bæði um nýja umsókn um örorkubætur/endurhæfingarlífeyri og um nýja umsókn um ellilífeyri hjá sama einstaklingi, enda sé ekki um samfellt bótatímabil að ræða. Heimildinni verði þó eingöngu beitt einu sinni um útreikning ellilífeyris. Þegar um endurhæfingar- eða örorkulífeyrisþega sé að ræða teljist umsókn vera ný ef liðin séu meira en tvö ár frá því að síðasta örorkumat hafi runnið út eða viðkomandi einstaklingur hafi verið í virkri endurhæfingu og/eða hafi fengið greiðslur frá Tryggingastofnun.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með endurhæfingarlífeyri og tengdar greiðslur frá 1. júní 2021 og út árið. Í samræmi við ákvæði 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hafi allar tekjur kæranda á tímabilinu 1. júní 2021 til 31. desember 2021 áhrif á réttindi kæranda. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 771.557 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu og áður myndaðrar kröfu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Tryggingastofnun hafi borist umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri þann 13. apríl 2021. Kærandi hafi sent inn tekjuáætlun þann 14. júní 2021 þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir neinum tekjum. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 16. júní 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um afgreiðslu umsóknar um endurhæfingarlífeyri frá 1. júní 2021. Í bréfinu hafi komið fram að miðað yrði við engar tekjur. Kæranda hafi verið greitt samkvæmt þessari tekjuáætlun út nóvember 2021.

Kærandi hafi skilað inn nýrri tekjuáætlun þann 11. nóvember 2021 þar sem gert hafði verið ráð fyrir 490.000 kr. í launatekjur. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 29. nóvember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um endurmat endurhæfingarlífeyris frá 1. desember 2021. Í bréfinu hafi komið fram að miðað yrði við 490.000 kr. launatekjur en hins vegar hafi láðst að nefna að við þessa breyttu tekjuáætlun hafi myndast ofgreiðsla að fjárhæð 75.248 kr. og að hún yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins.

Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að frá 1. júní 2021 og til með 31. desember 2021 hafi kærandi verið 995.705 kr. í launatekjur, 2.919 kr. í aðrar tekjur og að sameiginlegar tekjur þeirra hjóna í vexti og verðbætur hafi verið 2.274 kr. og 3.500.000 kr. í arð. Tekjuáætlun Tryggingastofnunar hafði gert ráð fyrir því að á því tímabili hefði kærandi einungis haft 490.000 kr. í launatekjur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 1.847.281 kr. en hefði átt að fá greitt 776.142 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 771.557 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu og áður myndaðrar kröfu.

Kærandi segi í kæru að hún hafi sent inn beiðni um breytingu á skattframtali sínu þar sem vegna mistaka hafi arðgreiðslur sambýlismanns hennar komið inn á framtalið en um hafi verið að ræða arðgreiðslu frá árinu 2020 og sem hefði verið getið á skattframtali 2021 vegna tekna ársins 2020. Ekki hafi verið um neina arðgreiðslu að ræða á árinu 2021.

Tryggingastofnun vilji benda á að þegar úrskurður Skattsins liggi fyrir skuli kæranda senda hann til stofnunarinnar og óska eftir endurreikningi á uppgjöri ársins 2021. Tryggingastofnun hafi frestað innheimtu á ofgreiðslukröfu þangað til þetta sé tilbúið hjá Skattinum.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur vera fyrir hendi til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021, að svo stöddu.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021 og innheimtu ofgreiddra bóta.

Kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun frá 1. júní og út desember 2021. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Launatekjur og fjármagnstekjur eru tekjustofnar sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og einnig A- og C-liði 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Samkvæmt 2. málsl. a-liðar 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar skulu fjármagnstekjur skiptast til helminga á milli hjóna við útreikning bóta og þá segir í 3. málsl. sömu greinar að ekki skipti máli hvort hjónanna sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða.

Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009, sbr. breytingareglugerð nr. 1118/2013, sé Tryggingastofnun ríkisins heimilt þegar einstaklingur leggur inn nýja umsókn um bætur að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað sé að aflað verði eftir að bótaréttur stofnast.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Kærandi naut greiðslna endurhæfingarlífeyris frá júní til desember 2021. Í samræmi við framangreint ákvæði 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hafa allar tekjur kæranda í þeim mánuðum áhrif á réttindi kæranda. Kærandi sendi Tryggingastofnun tekjuáætlun þann 14. júní 2021 þar sem hún gerði ekki ráð fyrir neinum tekjum á árinu. Tryggingastofnun féllst á tekjuáætlun kæranda með bréfi, dags. 16. júní 2022. Kærandi lagði fram nýja tekjuáætlun 11. nóvember 2021 þar sem hún gerði ráð fyrir 490.000 kr. í launatekjur. Tryggingastofnun samþykkti tekjuáætlun kæranda að frádregnu 19.600 kr. í iðgjald í lífeyrissjóð. Bótaréttindi voru því reiknuð og bætur greiddar út miðað við framangreindar forsendur árið 2021.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 reyndust tekjur kæranda á tímabilinu 1. júní 2021 til 31. desember 2021 vera 995.705 kr. í launatekjur, 2.919 kr. í aðrar tekjur og sameiginlegar tekjur kæranda og maka reyndust vera 2.274 kr. í vexti og verðbætur og 3.500.000 kr. í arð. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins var sú að sökum tekna hafi kærandi fengið ofgreitt í bótaflokkunum grunnlífeyri, tekjutryggingu, aldurstengdri örorkuuppbót, orlofs- og desemberuppbótum og sérstakri uppbót til framfærslu og væru bætur því ofgreiddar samtals að fjárhæð 771.557 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að launatekjur og fjármagnstekjur voru vanáætlaðar í tekjuáætlun. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Kærandi byggir á því að fyrir mistök hafi arður sambýlismanns hennar verið tilgreindur á skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021. Búið sé að óska eftir leiðréttingu hjá Skattinum vegna þess. Eins og fram kemur í greinargerð Tryggingastofnunar hefur innheimtu framangreindrar ofgreiðslu verið frestað og kæranda verið leiðbeint um að upplýsa stofnunina um þegar skattbreyting hefur átt sér stað og verði endurreikningur og uppgjör ársins 2021 þá framkvæmdur á ný.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum