Hoppa yfir valmynd
4. maí 2023

Mál nr. 122/2023 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 122/2023

Fimmtudaginn 4. maí 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. febrúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. febrúar 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. mars 2022 og var umsóknin samþykkt 12. apríl 2022. Þann 31. janúar 2023 var kærandi boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að um væri að ræða úrræði sem væri skylda til að sinna og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Einnig var tekið fram að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar á greiðslum. Kærandi mætti ekki í umrætt viðtal. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 3. febrúar 2023, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt í viðtal á áður boðuðum tíma. Engar skýringar bárust frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Skýringar bárust frá kæranda 14. febrúar 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt að mál hans hefði verið tekið upp að nýju og að fyrri ákvörðun væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. febrúar 2023. Með bréfi, dags. 9. mars 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. mars 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann fari fram á að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. febrúar 2023, verði felld úr gildi.

Vinnumálastofnun hafi fellt niður bætur til kæranda í tvo mánuði vegna þess að kærandi hafi hafnað vinnumarkaðsúrræði þar sem hann hafi misst af boðuðu viðtali sem hafi átt að fara fram þann 1. febrúar 2023. Stofnunin beri fyrir sig að hafa sent bæði tölvupóst og smáskilaboð um boðaðan fund. Þau skilaboð hafi borist kæranda daginn fyrir áætlaðan fund og hafi verið lesin þegar fundurinn hafi verið yfir staðinn.

Kærandi hafi óskað eftir nýjum fundi í kjölfarið en í stað þess hafi hann fengið upplýsingar um að mál hans yrði tekið fyrir. Í kjölfarið hafi kæranda borist tilkynning um að réttur hans til bóta yrði felldur niður í tvo mánuði. Í framhaldinu hafi kærandi sent bréf með skýringum á fjarveru sinni. Kærandi hafi skýrt frá því að hann hefði ekki séð fundarboðin en Vinnumálastofnun hafi staðið við fyrri ákvörðun sína og ekki úthlutað honum nýjum fundi. Augljóst hafi átt að vera fyrir Vinnumálastofnun að ekki hafi verið um að ræða höfnun á vinnumarkaðsúrræði. Vinnumálastofnun hefði átt að koma til móts við kæranda eins og þekkt sé í mörgum sambærilegum tilvikum. Hvorki hafi verið gætt jafnræðis né meðalhófs við ákvörðunina.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 17. mars 2022. Með erindi, dags. 12. apríl 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 31. janúar 2023 hafi kærandi verið boðaður til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík, klukkan 09:45 þann 1. febrúar 2023. Kæranda hafi verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið send klukkan 08:59 þann 31. janúar 2023 á netfang kæranda, með skilaboðum í farsíma og með tilkynningu á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki mætt til boðaðs viðtals.

Með erindi, dags. 3. febrúar 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals þann 1. febrúar 2023. Vinnumálastofnun hafi áréttað að hafi atvinnuleitandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila stofnuninni skýringum sínum. Vinnumálastofnun hafi þó ekki borist neinar skýringar frá kæranda innan tilgreinds frests.

Með erindi, dags. 13. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals þann 1. febrúar 2023. Þann 14. febrúar 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda. Að sögn kæranda hafi ástæða þess að hann hafi ekki mætt til umrædds viðtals einfaldlega verið gleymska. Kærandi hafi óskað eftir því að honum yrði fundinn nýr viðtalstími.

Í kjölfar þess að Vinnumálastofnun hafi borist framangreindar skýringar kæranda hafi ákvörðun stofnunarinnar, dags. 13. febrúar 2023, verið tekin til endurumfjöllunar. Með erindi, dags. 20. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það væri hins vegar mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, dags. 13. febrúar 2023, enda væri sú ákvörðun efnislega rétt, þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hans.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Samkvæmt [h-lið] 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 14. gr. sé kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 1. febrúar 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kærandi hafi fengið sólarhringsfyrirvara. Á grundvelli ákvæðis 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð sem hafi fylgt frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Jafnframt sé tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Fortakslaust skilyrði sé að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu sendar svo að unnt sé að aðstoða umsækjanda um atvinnuleysisbætur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um, komi fram að umsækjendur séu upplýstir um að þeim sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði þá til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar lúti að því að hann hafi aðeins fengið sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðuninni. Þegar hann hafi lesið skilaboð stofnunarinnar um boðun til viðtals hafi viðtalstími hans þegar verið liðinn. Þá hafi kærandi jafnframt borið fyrir sig gleymsku. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til niðurlags ákvæðis 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem sérstaklega sé kveðið á um að atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem sé næst lögheimili viðkomandi. Kæranda hafi verið send boðun til umrædds viðtals á uppgefið netfang hans, með skilaboðum í farsíma og með tilkynningu á ,,Mínum síðum“ klukkan 08:59 þann 31. janúar 2023. Kærandi hafi því fengið rétt rúmlega sólarhringsfyrirvara til þess að bregðast við boðun um viðtal. Að mati Vinnumálastofnunar sé sá fyrirvari hæfilegur tími fyrir atvinnuleitendur til að gera viðeigandi ráðstafanir svo að þeim sé kleift að verða við skyldum sínum. Vinnumálastofnun þyki ljóst að skýringar kæranda þess efnis að hann hafi ekki séð boðun stofnunarinnar og að hann hafi vegna gleymsku ekki mætt til umrædds viðtals séu ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á ,,Mínum síðum“ eða með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa hafnað því að mæta í viðtal hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé sú að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 1. febrúar 2023. Kæranda var greint frá því að um væri að ræða úrræði sem skylda væri að sinna og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur borið því við að hafa ekki séð skilaboð Vinnumálastofnunar um boðunina í viðtalið fyrr en það var afstaðið.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti, smáskilaboðum í farsíma og skilaboðum á „Mínum síðum“ og send með rúmlega sólarhringsfyrirvara. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. febrúar 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

___________________________________

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum