Hoppa yfir valmynd
21. ágúst 2017

Niðurstöður könnunar á kostnaðarþátttöku vegna skólagagna

velferðarráðuneytið  - myndVelferðarráðuneytið

Meirihluti sveitarfélaga útvegar börnum skólagögn endurgjaldslaust

Ríflega tvöfalt fleiri sveitarfélög ætla að útvega grunnskólabörnum skólagögn s.s. ritföng og pappír án endurgjalds á nýhöfnu skólaári en gerðu það í fyrra, samtals 41 sveitarfélag. Þá ætla 17 sveitarfélög að draga úr kostnaðarþátttöku nemendanna vegna skólagagna. Þetta er niðurstaða könnunar Velferðarvaktarinnar sem Maskína framkvæmdi.

Velferðarvaktin hefur á liðnum árum lagt áherslu á að sveitarfélög haldi kostnaði heimila vegna skólasóknar barna í lágmarki þannig að slík útgjöld komi síður niður á námi og lífi barna í efnalitlum fjölskyldum.

Í könnuninni var haft samband við öll sveitarfélög í landinu og meðal annars spurt hvort nemendur í grunnskólum á þeirra vegum þyrftu sjálfir að greiða fyrir námsgögn s.s. ritföng og pappír, hvort sveitarfélögin greiddu þennan kostnað að fullu eða að hluta og jafnframt hvort þau hefðu sett sér einhverja stefnu hvað þetta varðaði. Spurt var hvernig þessum málum var háttað á síðasta skólaári og hvernig þeim yrði háttað á því sem er að hefjast.

Helstu niðurstöður:

  • Alls ætlar 41 sveitarfélag (55%) að greiða skólagögn nemenda að fullu á þessu skólaári og eru það ríflega tvöfalt fleiri sveitarfélög en í fyrra, sem voru þá 17 (23%).
  • Til viðbótar þeim sveitarfélögum sem ætla að afnema greiðsluþátttöku nemenda að fullu ætla 17 sveitarfélög að draga úr kostnaðarhlutdeild nemenda í skólagögnum.
  • 78% sveitarfélaga hafa ýmist ákveðið að greiða að fullu fyrir námsgögn nemenda sinna eða lækka kostnaðarhlutdeild þeirra miðað við síðastliðið skólaár.

Umtalsverð kostnaðarþátttaka á svig við anda grunnskólalaga og Barnasáttmála

Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, segir fagnaðarefni að meirihluti sveitarfélaga hafi tekið ákvörðun um að fella niður eða lækka þennan kostnað hjá nemendum líkt og könnunin leiðir í ljós: „Velferðarvaktin hefur einnig lagt til að 31. grein grunnskólalaga sem kostnaðarþátttakan hefur byggst á verði endurskoðuð. Könnun Sambands íslenskra sveitarfélaga leiddi í ljós að upphæðirnar sem nemendur hafa þurft að greiða fyrir námsgögn eru mjög mismunandi, allt frá 0 kr. upp í rúmar 22.000 kr. á nemanda. Velferðarvaktin telur að kostnaðarþátttaka barnafjölskyldna upp á tugi þúsunda króna fyrir skólagögn samrýmist hvorki anda Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna né grunnskólalaganna “ sagði Siv Friðleifsdóttir.

Könnunin fylgir í viðhengi, en þar má sjá svör einstakra sveitarfélaga.

Upplýsingar um Velferðarvaktina má finna á https://www.stjornarradid.is/verkefni/felags-og-fjolskyldumal/velferdarvaktin/

Þeim sem hafa spurningar sem lúta að framkvæmd sjálfrar könnunarinnar er bent á að hafa samband við Maskínu í síma 578-0125 eða senda á netfangið [email protected].

Að öðru leyti er hægt að hafa samband við formann Velferðarvaktarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum