Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2020 Matvælaráðuneytið

Ráðherra ákveður árskvóta í deilistofnum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um veiðar íslenskra skipa á makríl á árinu 2020.

 

Allt frá því að samkomulag Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins gekk í gildi árið 2014, hefur Ísland miðað ákvarðanir sínar út frá 16,5% og ákvörðunum þeirra um heildarafla hverju sinni, ef undan er skilið síðasta ár þegar ákvörðun Íslands miðaðist við 16,5% af samanlögðum yfirlýstum kvótum allra aðila.

 

Á síðasta ársfundi NEAFC (The North East Atlantic Fisheries Commission) var samþykkt tillaga þess efnis að miða skuli heildarafla ársins 2020 við 922.064 tonn, óháð ósamkomulagi um skiptingu. Þar sem Ísland er ekki aðili að makrílsamkomulagi, þá reiknast 16,5% af 922.064 tonnum sem 152.141 tonn.

 

Norsk-íslensk síld og kolmunni

 

Sem viðleitni af hálfu Íslendinga til að hreyfa við viðræðum strandríkjanna í deilistofnunum þremur, þá voru um áramót gefnar út reglugerðir í norsk-íslenskri síld og kolmunna í samræmi við síðustu samþykktu samningstölu. Í ljósi þess að þessi viðleitni hefur ekki hlotið undirtektir samningsaðilanna, þá hefur ráðherra endurskoðað þessar ákvarðanir og hefur ákveðið að miða við sama hlutfall af samþykktri heildarveiði NEAFC og fyrir síðasta ár sem  var 17,36% fyrir norsk-íslenska síld og 21.1% í tilviki kolmunna. Með þessu er Ísland þó ekki að fylgja fordæmi annarra strandríkja sem hafa hækkað hlut sinn frá síðasta ári.  Heildarafli ársins 2020 hefur því verið ákveðinn 91.243 tonn í norsk-íslenskri síld og 245.101 tonn í kolmunna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum