Hoppa yfir valmynd
1. desember 2022 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2023

Laugardaginn 19. nóvember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2023, sbr. reglugerð nr. 1151/2022.

Ekkert tilboð barst um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088). Útboð um innflutning á 2.200 stk.

Ekkert tilboð barst um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093). Útboð um innflutning á 3.000 stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum úr tollskrárnúmeri (0603.1100), samtals 5.000 stk., á meðalverðinu 61 kr./stk.  Hæsta boð var 62 kr./stk. en lægsta boð var 59 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á jafnvægisverðinu 62 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 16.000 stk., á meðalverðinu 53 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 42 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á jafnvægisverðinu 60 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 226.250 stk. á meðalverðinu 37 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 5 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á jafnvægisverðinu 5 kr./stk.

Matvælaráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:

 

Rósir janúar – júní 2023

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.000

Grænn markaður ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2023

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

7.000

Samasem ehf

 

Afskorin blóm janúar – júní 2023

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

10.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

50.000

Grænn markaður ehf

106.250

Samasem ehf

 

Reykjavík, 29. nóvember 2022  

Matvælaráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum