Hoppa yfir valmynd
2. mars 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Frumvarp og reglugerð um Ferðatryggingasjóð í Samráðsgátt

Ferðamálaráðherra hefur birt frumvarp til laga um Ferðatryggingasjóð og reglugerð sem sett verður til nánari útfærslu fyrir sjóðinn í samráðsgátt stjórnvalda.

Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót nýju tryggingakerfi fyrir pakkaferðir í stað gildandi tryggingakerfis sem sætt hefur mikilli gagnrýni undanfarin ár. Hið nýja fyrirkomulag felst í stofnun sameiginlegs tryggingasjóðs sem tryggir endurgreiðslur til ferðamanna við ógjaldfærni eða gjaldþrot seljenda pakkaferða.

Núgildandi kerfi hefur verið afar dýrt og óheppilegt í framkvæmd fyrir margar ferðaskrifstofur án þess að veita fullnægjandi neytendavernd eins og því er þó ætlað að gera. Með stofnun Ferðatryggingasjóðs er komist hjá þessum ókostum, neytendum jafnt sem ferðaskrifstofum til mikilla hagsbóta. Hið nýja kerfi tryggir fulla endurgreiðslu til neytenda en í gildandi kerfi er örðugt um vik að láta tryggingarfjárhæð ávallt endurspegla raunverulega tryggingaþörf. Að sama skapi lækkar verulega það fé sem ferðaskrifstofur þurfa að binda hjá Ferðamálastofu til tryggingar fullum efndum pakkaferða. Hagræði af hinu nýja kerfi fyrir ferðaskrifstofur má gróflega áætla um hálfan milljarð króna á ári.

Við vinnslu frumvarpsins var uppbygging danska og norska tryggingasjóðanna höfð til hliðsjónar auk ráðgjafar tryggingastærðfræðings. Gert er ráð fyrir að hinn nýi tryggingasjóður verði stofnaður 1. júlí nk.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:

„Með stofnun Ferðatryggingasjóðs verður stigið stórt skref í átt að samkeppnishæfara og neytendavænna starfsumhverfi ferðaskrifstofa hér á landi. Ferðatryggingasjóður verður til gríðarlegra hagsbóta fyrir bæði neytendur, sem geta eftir stofnun hans gengið að endurgreiðslu vísri takist ekki að efna pakkaferð að fullu, og ferðaskrifstofur, sem munu losa um mikið fé til frambúðar sem þá verður hægt að nota til rekstrarlegrar uppbyggingar.“

Frumvarpið og reglugerðina má finna hér í Samráðsgátt stjórnvalda- hægt er að skila inn athugasemdum til 12. mars 2021.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum