Hoppa yfir valmynd
29. september 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 242/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 242/2021

Miðvikudaginn 29. september 2021

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með rafrænni kæru, móttekinni 14. maí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. maí 2021 á umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti endurhæfingarlífeyri með rafrænni umsókn 29. apríl 2021. Með ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. maí 2021, var umsókn kæranda synjað á þeim grundvelli að kærandi hafi áður sótt um endurhæfingarlífeyri sem hafi verið synjað og að nýjar upplýsingar gæfu ekki tilefni til breytinga á fyrra mati frá 22. mars 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. maí 2021. Með bréfi, dags. 18. maí 2021, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 8. júní 2021, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júní 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að kærandi hafi verið óvinnufær síðan hún lenti í slysi X þar sem að hún hafi dottið og brotið rófubeinið. Í kjölfar slyssins sé hún með 1,5 cm mjaðmaskekkju og „major kyphosis+brjósklos“ og festumein í mjöðm.

Kærandi hafi ekki sótt um styrki nema tilfallandi þar sem hún hafi ekki þurft á fjárhagslegri aðstoð að halda á meðan á endurhæfingu hafi staðið. Kærandi hafi talið sér trú um að geta gert þetta sjálf og að hún myndi lagast „á morgun“. Kærandi hafi verið hjá sjúkraþjálfurum, kírópraktor, fengið myofacial stretching, nálastungur, nudd, flot, lyfjameðferðir, hugleiðslumeðferðir ásamt öðrum meðferðum til að reyna að ná bata, en án árangurs.

Á meðan á endurhæfingu hafi staðið hafi læknar talið offitu vera vandamálið (þó svo að fyrir meiðslin hafi kærandi verið í kjörþyngd). Kærandi hafi á eigin kostnað farið í efnaskiptaaðgerð sem hafi ekki leyst neinn vanda. Einnig hafi hún fengið stórt hnémeiðsl þegar hún hafi að læknisráði stundað endurhæfingu.

Kærandi hafi ekki efni á því að stunda frekari endurhæfingu en sé synjað í hvert skipti þar sem endurhæfing hafi verið talin ófullnægjandi. Samt hafi tugir þúsunda króna farið í endurhæfingarferlið og hún hafi ekki þegið neinar bætur. Það komi skýrt fram í sjúkrasögu að kærandi sé algjörlega óvinnufær eins og staðan sé vegna líkamlegra og andlegra veikinda sinna.

Ef atvinnusaga kæranda sé skoðuð, sé mjög skýrt að löngu fyrir slysið hafi hún verið verið orðin óvinnufær en hún hafi haldið áfram „á hnefanum“.

Kærandi lifi við daglega stoðkerfisverki, hún sé greind með vefjagigt, ME/CFS, ofsakvíða, einkenni áfallastreituraskana og vott af þráhyggjuröskun.

Sökum kvíða og félagsfælni sé kærandi oft föst í sínu eigin húsi. Hún nái ekki að stunda eðlileg heimilisstörf vegna stoðkerfisvanda. Hún eigi einnig erfitt með daglegar athafnir svo sem lengri göngur og að sitja í bíl. Alla ævi hafi kærandi átt erfitt með að mæta í setta tíma og jafnvel vinnu vegna kvíða og félagsfælni.

Það sé ljóst út frá sjúkrasögu og núverandi líkamlegri og andlegri getu kæranda að um örorku ætti að vera að ræða sem henni hafi verið synjað um í hvert skipti. Núna hafi komið önnur synjun, dags. 12. maí 2020, á meðan hún bíði eftir að komast í geðteymi og sé með virkan hreyfiseðil til að vinna á kvíða og stoðverkjum.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærðar séu tvær ákvarðanir stofnunarinnar um synjun endurhæfingarlífeyris, dags. 12. maí og 22. mars 2021. Fyrra kærumálið sé nr. 155/2021. Tryggingastofnun hafi synjað beiðni kæranda um endurhæfingarlífeyri þar sem endurhæfing hafi ekki verið hafin með fullnægjandi utanumhaldi fagaðila. Kæranda hafi áður verið synjað um örorkumat þar sem fullnægjandi endurhæfing samkvæmt 7. gr. laga um endurhæfingarlífeyri hafi ekki verið fullreynd, sbr. ákvörðun, dags. 19. janúar 2021.

Um endurhæfingarlífeyri sé fjallað í 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, sbr. 11. gr. laga nr. 120/2009 um breytingu á þeim lögum. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Heimilt er að greiða endurhæfingarlífeyri í allt að 18 mánuði þegar ekki verður séð hver starfshæfni einstaklings sem er á aldrinum 18-67 ára verður til frambúðar eftir sjúkdóma eða slys. Greiðslur skulu inntar af hendi á grundvelli endurhæfingaráætlunar.  Skilyrði fyrir greiðslum er að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði sem telst fullnægjandi að mati framkvæmdaraðila og eigi hvorki rétt til launa í veikindaleyfi né greiðslna frá sjúkrasjóðum eða teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

Heimilt er að framlengja greiðslutímabil skv. 1. mgr. um allt að 18 mánuði ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.

Um endurhæfingarlífeyri gilda ákvæði a-liðar 1. mgr. 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007. Um aðrar tengdar bætur fer eftir sömu reglum og gilda um örorkulífeyri, sbr. þó 1. mgr. 10. gr. þessara laga.  Sjúkrahúsvist í endurhæfingarskyni skemur en eitt ár samfellt hefur ekki áhrif á bótagreiðslur.“

Tryggingastofnun ríkisins hafi eftirlit með því að endurhæfingaráætlun sé framfylgt og að skilyrði fyrir greiðslum séu að öðru leyti uppfyllt. Til dæmis að lögð sé fram endurhæfingaráætlun, lagðir fram endurhæfingarþættir og að umsækjandi taki þátt í endurhæfingunni með fullnægjandi hætti. Í áðurnefndri 7. gr. sé skýrt kveðið á um að skilyrði greiðslna sé endurhæfing með starfshæfni að markmiði, enda ekki álitið að sjúkdómsmeðferð eða óvinnufærni sem slík veiti rétt til greiðslu endurhæfingarlífeyris.

Um nánari skilyrði og framkvæmd endurhæfingarlífeyris hjá Tryggingastofnun sé fjallað um í reglugerð nr. 661/2020. Í 4. gr. reglugerðarinnar sé fjallað um upphaf, tímalengd og skilyrði greiðslna og í 5. gr. um sjálfa endurhæfingaráætlunina og þá sé tiltekið í 6. gr. hverjir geti verið umsjónaraðilar endurhæfingaráætlunar.

Í 37. gr. laga um almannatryggingar sé meðal annars kveðið á um að Tryggingastofnun skuli kynna sér aðstæður umsækjenda og greiðsluþega og gera þeim grein fyrir rétti þeirra samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum er stofnunin starfi eftir, reglugerðum settum á grundvelli laganna og starfsreglum stofnunarinnar. Við meðferð máls skuli staða og réttindi umsækjanda eða greiðsluþega skoðuð heildstætt. Stofnunin skuli leiðbeina umsækjanda um réttarstöðu hans, þau gögn sem þurfi að fylgja umsókn og um framhald málsins og hafi því öllu verið sinnt í þessu máli.

Við mat á nýjustu umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri þann 12. maí 2021 hafi bæst við eldri fyrirliggjandi gögn, læknisvottorð B, dags. 5. maí 2021, endurhæfingaráætlun, dags. 7. maí 2021, bréf Tryggingastofnunar um staðfestingu úrræða hjá kæranda, dags. [30]. apríl 2021, og svar Geðheilsuteymis C um bið á úrræðum, dags. 3. maí 2021.

Kærandi hafi einnig kært fyrri synjun endurhæfingarlífeyris til úrskurðarnefndar velferðarmála og sé sú kæra í vinnslu hjá nefndinni, sjá nánar kærumál nr. 155/2021.

Kærandi hafi 29. apríl 2021 sótt aftur um endurhæfingarlífeyri og í framhaldinu hafi Tryggingastofnun sent henni bréf, dags. 30. apríl 2021, þar sem óskað hafi verið eftir staðfestingu og útlistun frá Geðteymi C á endurhæfingu á þeirra vegum og upphafstíma þeirrar endurhæfingar.

Samkvæmt staðfestingu frá Geðheilsuteymi C, dags. 3. maí 2021, sé kærandi enn á biðlista eftir þjónustu, tilvísun hafi verið móttekin 5. mars 2021 og hún hafi fengið samþykki fyrir þjónustu en jafnframt komi fram að kærandi sé á bið eftir þjónustu geðheilsuteymisins og að biðin geti verið allt að fjórir til sex mánuðir. Í endurhæfingaráætlun B heimilislæknis hafi verið sótt um endurhæfingartímabil frá 1. maí 2021. Í áætluninni hafi verið gert ráð fyrir eftirfarandi: „Hittir heimilislækni eftir þörfum 1-2x í mán, samþykkt hjá Geðteymi C til að vinna með andleg vandamál. Hreyfiseðill: á bókaðan tíma hjá hreyfistjóra C, vikuleg eftirfylgd eða skv. hreyfistjóra,heimaæfingar skv. æfingarprógrammi frá Kiropraktor 3x í viku ef til vill breyting skv. hreyfistjóra auk þess daglegar göngur. Byrjar í sjúkraþjálfun þegar fjárráð leyfa.“

Í læknisvottorði B komi fram að kærandi sé búin að vera með verki frá fyrstu meðgöngu og versnandi stoðkerfisverki síðustu árin. Hún hafi hætt vinnu vegna þessa í október 2017 en hafi þá unnið á [...]. Í vottorðinu komi fram að kærandi sé með útbreidda stoðkerfisverki, svefntruflanir og þreytu og hafi verið greind með vefjagigt hjá D vorið 2018. Sótt hafi verið um í VIRK á árinu 2020 en hún hafi ekki verið talin kandidat til starfsendurhæfingar. Í vottorðinu komi jafnframt fram að kærandi sé einnig með langvarandi kvíða og hafi um tíma verið í viðtölum hjá geðlækni. Þá hafi hún verið greind með átröskun og félagsfælni.

Vakin sé athygli á að kærandi hafi fengið synjun á endurhæfingarlífeyri, dags. 22. mars 2021, þar sem við skoðun máls hafi ekki þótt vera rök fyrir að meta endurhæfingartímabil hjá kæranda þar sem virk starfsendurhæfing hafi ekki verið talin vera í gangi. Fyrri endurhæfingaráætlun hafi verið byggð upp af sömu þáttum og núgildandi áætlun fyrir utan það að núna sé þess getið að umsækjandi fái hreyfiseðil og sé að fara að hitta hreyfistjóra.

Umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri hafi þar af leiðandi verið synjað þann 12. maí 2021. Í bréfinu komi fram að ekki hafi þótt vera rök fyrir að meta endurhæfingartímabil að svo stöddu þar sem nýjar upplýsingar hafi ekki gefið tilefni til breytinga á fyrra mati frá 22. mars 2021 þar sem virk starfsendurhæfing hafi ekki verið talin vera í gangi.

Við mat á eldri umsókn um endurhæfingarlífeyri þann 22. mars 2021 hafi legið fyrir eftirfarandi gögn sem einnig hafi komið við sögu við matið nú. Umsókn um endurhæfingarlífeyri, dags. 19. janúar 2021, endurhæfingaráætlun E heimilislæknis, móttekin 9. mars 2021, læknisvottorð E, dags. 5. mars 2021, og staðfesting frá Geðheilsuteymi C, dags. 9. mars 2021.

Í greinargerð Tryggingastofnunar er gerð grein fyrir því sem fram kemur í endurhæfingaráætlun og því sem kemur fram í læknisvottorði E.

Í staðfestingu frá Heilsuveru, dags. 9. mars 2021, komi fram að Geðheilsuteymi C hafi móttekið og samþykkt tilvísun hjá kæranda en að það hafi myndast biðlisti eftir þjónustunni og gera megi ráð fyrir að allt að fjórir til sex mánaðir geti liðið þar til tilvísun er móttekin og þar til boð berist um viðtal.

Kærandi hafi þannig á þeim forsendum einnig fengið synjun á umsókn sinni um endurhæfingarlífeyri, dags. 22. mars 2021, þar sem við skoðun máls hafi ekki þótt vera rök fyrir að meta endurhæfingartímabil þar sem virk starfsendurhæfing hafi ekki verið talin vera í gangi.

Samkvæmt 7. gr. laga um félagslega aðstoð sé skilyrði fyrir greiðslum endurhæfingarlífeyris að umsækjandi taki þátt í starfsendurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni starfshæfni einstaklings. Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 661/2020 skuli endurhæfingaráætlun ávallt taka mið af heilsufarsvanda umsækjanda með það að markmiði að aðstoða umsækjanda við að leita lausna við þeirri færniskerðingu eða þeim heilsubresti sem valdi skertri starfshæfni hans. Leitast skuli við að endurhæfingaráætlun byggi á heildstæðri nálgun með það að markmiði að bæta heilsu og auka starfsorku og starfshæfni.

Samkvæmt endurhæfingaráætlun frá lækni hafi kærandi ekki verið byrjuð í sjúkraþjálfun. Auk þess hafi legið fyrir staðfesting frá geðheilsuteymi um að kærandi væri á biðlista eftir að komast í þjónustu þar.

Það sé og hafi verið mat Tryggingastofnunar að viðtöl við lækni einu til tvisvar sinnum í mánuði eða eftir þörfum, sé ekki nægilegt til að auka frekari starfshæfni umsækjanda þegar til lengri tíma sé litið og réttlæti því ekki rétt til endurhæfingarlífeyris hjá stofnuninni að svo komu máli. Tryggingastofnun líti svo á að ekki sé verið að taka nægilega á þeim heilsufarsþáttum sem hafi valdið óvinnufærni með utanumhaldi fagaðila og ekki sé verið að taka á heildarvanda kæranda.

Endurhæfingarlífeyrir taki mið af því tímabili sem viðkomandi taki þátt í skipulagðri starfsendurhæfingu undir handleiðslu fagaðila þar sem tekið sé markvisst á þeim heilsufarsvanda sem valdi óvinnufærni. Óvinnufærni ein og sér veiti ekki rétt til greiðslna endurhæfingarlífeyris. Skýrt sé í lögum og í reglugerð um endurhæfingarlífeyri að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði sem teljist fullnægjandi að mati framkvæmdaraðila. Því hafi verið álitið að skilyrði 7. greinar áðurnefndra laga hafi ekki verið uppfyllt.

Mat á beiðni kæranda um endurhæfingarlífeyri hafi farið fram hjá stofnuninni 22. mars 2021 þar sem henni hafi verið synjað um endurhæfingarlífeyri. Ekki hafi þótt vera rök fyrir að meta greiðslur þar sem starfsendurhæfing hafi ekki verið talin hafin með utanumhaldi fagaðila þar sem tekið væri á heildarvanda en óvinnufærni ein og sér veiti ekki rétt til endurhæfingarlífeyris.

Að lokum telji Tryggingastofnun ljóst að stofnunin hafi afgreitt umsóknir kæranda í samræmi við innsendar endurhæfingaráætlanir, lög um félagslega aðstoð, lög um almannatryggingar og úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála.

Þá skuli tekið fram eins og í synjunarbréfum frá 12. maí og 22. mars 2021 að verði breyting á endurhæfingu kæranda eða aðstæðum geti hún lagt inn nýja umsókn og endurhæfingaráætlun, auk gagna frá fagaðilum sem staðfesti virka þátttöku í starfsendurhæfingu og þá verði málið tekið fyrir að nýju.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um endurhæfingarlífeyri. Ágreiningur máls þessa snýst um hvort kærandi uppfylli skilyrði fyrir greiðslu endurhæfingarlífeyris, sbr. 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

„Heimilt er að greiða endurhæfingarlífeyri í allt að 18 mánuði þegar ekki verður séð hver starfshæfni einstaklings sem er á aldrinum 18 til 67 ára verður til frambúðar eftir sjúkdóma eða slys. Greiðslur skulu inntar af hendi á grundvelli endurhæfingaráætlunar. Skilyrði fyrir greiðslum er að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði sem telst fullnægjandi að mati framkvæmdaraðila og eigi hvorki rétt til launa í veikindaleyfi né greiðslna frá sjúkrasjóðum eða teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.“

Í 2. mgr. ákvæðisins segir að heimilt sé að framlengja greiðslutímabil samkvæmt 1. mgr. um allt að 18 mánuði ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Á grundvelli 5. mgr. 7. gr. laga um félagslega aðstoð hefur verið sett reglugerð nr. 661/2020 um framkvæmd endurhæfingarlífeyris. Í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar segir um mat á líklegum árangri endurhæfingar:

„Tryggingastofnun skal meta heildstætt hvort líklegt sé að sú endurhæfing sem lagt er upp með í endurhæfingaráætlun muni stuðla að aukinni starfshæfni. Einnig skal stofnunin leggja mat á það hverju sinni hvort fyrirhuguð endurhæfing sem gerð er grein fyrir í endurhæfingar­áætlun, sbr. 5. gr., þ.m.t. viðmið um ástundun og viðtöl, sé fullnægjandi með tilliti til markmiðs endurhæfingar­innar.“

Í 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. framangreindrar reglugerðar segir um upphaf greiðslna:

„Grundvöllur greiðslna er að endurhæfingaráætlun liggi fyrir og er heimilt að setja það skilyrði fyrir greiðslu endurhæfingarlífeyris að umsækjandi hafi formlega hafið endurhæfingu hjá viðurkenndum umsjónaraðila endurhæfingaráætlunar, sbr. 6. gr.“

Í 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar segir um endurhæfingaráætlun:

„Endurhæfingaráætlun skal ávallt taka mið af heilsufarsvanda umsækjanda með það að markmiði að aðstoða umsækjanda við að leita lausna við þeirri færniskerðingu eða heilsubresti sem veldur skertri starfshæfni hans. Leitast skal við að endurhæfingaráætlun byggi á heildstæðri nálgun með það að markmiði að bæta heilsu og auka starfsorku og starfshæfni. Tryggingastofnun metur heild­stætt í hverju tilviki hvort endurhæfingaráætlun teljist fullnægjandi til að skilyrði fyrir greiðslum séu upp­fyllt.“

Heimild til greiðslu endurhæfingarlífeyris er samkvæmt framangreindu bundin ákveðnum skilyrðum sem uppfylla verður til að greiðslur séu heimilar. Þeirra á meðal er skilyrðið um að umsækjandi taki þátt í endurhæfingu með starfshæfni að markmiði sem telst fullnægjandi að mati framkvæmdaraðila. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort framangreind skilyrði séu uppfyllt.

Fyrir liggur í málinu læknisvottorð B, dags. 5. maí 2021, og þar koma fram eftirfarandi sjúkdómsgreiningar:

„Vefjagigt

Coccygodynia

Disc prolapse, other

Blandin kvíða- og geðlægðarröskun

Fatigue syndrome

Hyperaesthesia

Félagsfælni

Eating disorders“

Um sjúkrasögu kæranda segir í vottorðinu:

„X ára, gift, X barna móðir [...]. Verið með verki frá fyrstu meðgöngu Versnandi stoðkerfisverkir síðustu árin, hætti vinnu vegna þessa í okt. 2017 en vann þá á [...]. Hamlandi verkir í rófubeini eftir fall [...] og annað fall síðar sama ár. Átt erfitt með að sitja lengi, annast börnin og ganga. Brjósklos í brjósthrygg greint 2019. Er með útbreidda stoðkerfisverki, svefntruflanir og þreytu, greinist með vefjagigt hjá D vorið 2018. Verið í endurhæfingu hjá D. Sótt var um í VIRK 2020 en hún ekki talinn kandidat til starfsendurhæfingar. Útskrifuð eftir 3 vikur hjá VIRK. Þá sótt um örorku en henni hafnað.

Langvarandi kvíði, var um tíma í viðtölum hjá geðlækni. Þá hefur hún greinst með átröskun og félagsfælni. Verið til meðferðar hjá átröskunarteyminu og á F. Þyngdist um 50kg á 9 mánuðum 2017, fór í gastric bypass [...].“

Einnig liggur fyrir staðfesting frá C, dags. 3. maí 2021, þar sem fram kemur að kærandi sé á biðlista eftir þjónustu geðheilsuteymis, tilvísun hafi verið móttekin 5. mars 2021 og að kærandi hafi verið upplýst um að bið eftir þjónustu geti verið fjórir til sex mánuðir.

Fyrir liggur endurhæfingaráætlun, dags. 7. maí 2021, og þar segir að skammtímamarkmið endurhæfingar sé minni verkir svo að kærandi eigi auðveldara með daglegar athafnir. Langtímamarkmið sé að bæta líkamlegt og andlegt ástand og að kærandi komist aftur á almennan vinnumarkað. Samkvæmt áætluninni var endurhæfing fyrirhuguð frá 1. maí 2021 sem muni vonandi ljúka innan sex mánaða. Í endurhæfingaráætlun segir:

„1.   Heimilislæknir eftir þörfum, 1-2x í mánuði.

2.    Samþykkt í Geðteymi C til að vinna með andleg vandamál. Vinna áfram dagsdaglega með kvíða og félagsfælni skv. sálfræðingum og geðlæknum. Fyrst og fremst með hugrænni atferlismeðferð, með útsetningu fyrir kvíðavaldandi aðstæður.

3.    Hreyfiseðill, á bókaðan tíma hjá hreyfistjóra C, vikuleg eftirfylgd eða skv. hreyfistjóra.

4.    Heimaæfingar skv. æfingaprógrammi frá kírópraktor, 3x í viku 30-60 mín í senn. E.t.v. breyting skv. hreyfistjóra. Auk þess daglegar göngur.

5.    Byrjar í sjúkraþjálfun þegar fjárráð leyfa.“

Meðal gagna málsins liggja einnig fyrir læknisvottorð E, dags. 11. janúar 2021 og 5. mars 2021, vegna umsóknar um örorkulífeyri og vegna fyrri umsóknar um endurhæfingarlífeyri. Einnig liggur fyrir bréfi VIRK, dags. 23. ágúst 2019, til G læknis.

Í kærðri ákvörðun Tryggingastofnunar segir að ekki hafi þótt rök fyrir að meta endurhæfingartímabil þar sem nýjar uplýsingar hafi ekki þótt gefa tilefni til breytinga á fyrra mati frá 22. mars 2021. Í ákvörðun Tryggingastofnunar frá 22. mars 2021 var kæranda synjað um endurhæfingarlífeyri á þeim forsendum að virk endurhæfing teldist ekki vera í gangi. Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, telur að kærandi glími við andleg og líkamleg veikindi sem orsaki skerta vinnugetu. Það er mat úrskurðarnefndar að endurhæfing kæranda sé hvorki nægjanlega umfangsmikil né markviss þannig að fullnægjandi verði talið að því leyti að verið sé að vinna með starfshæfni að markmiði og endurkomu á vinnumarkað eins og 7. gr. laga um félagslega aðstoð gerir kröfur um, sbr. einnig 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 661/2020. Úrskurðarnefndin lítur meðal annars til þess að þegar kærð ákvörðun var tekin var kærandi hvorki byrjuð í sjúkraþjálfun né í þjónustu geðheilsuteymis. Hvorki í lögum um félagslega aðstoð né í reglugerð nr. 661/2020 er kveðið á um undantekningu frá því skilyrði að umsækjandi um endurhæfingarlífeyri taki þátt í fullnægjandi endurhæfingu með starfshæfni að markmiði með vísan til biðlista.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að skilyrði um greiðslu endurhæfingarlífeyris samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga um félagslega aðstoð sé ekki uppfyllt í tilviki kæranda. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. maí 2021 um að synja kæranda um greiðslu endurhæfingarlífeyris er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A, um endurhæfingarlífeyri, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum