Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 54/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 17. febrúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 54/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU19100065 og KNU19100066

Kæra […],

[…] og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. október 2019 kærðu einstaklingar er kveðast heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir K) og […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 3. október 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barna þeirra, […], um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að umsóknir kærenda verði teknar til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 4. júlí 2019. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 20. ágúst 2019 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 3. október 2019, kom fram að kærendum hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns þar í landi þann 3. janúar 2019 og væru með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 3. janúar 2022. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. dagana 18. júlí og 20. ágúst 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þá komu A, B og C til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 20. ágúst 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 3. október 2019 að taka ekki umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 8. október 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 22. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd þann 31. október 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn þann 8. nóvember 2019. Þann 12. nóvember 2019 bárust kærunefnd athugasemdir frá Útlendingastofnun við greinargerð kærenda og bárust andmæli kærenda vegna þeirra þann 20. janúar 2020. Samkvæmt upplýsingum sem bárust kærunefnd frá Útlendingstofnun m.a. þann 12. febrúar 2020 eru kærendur skráð horfin.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A, B, C, D og E kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra yrði ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda vísa þau m.a. til viðtala hjá Útlendingastofnun þar sem M og K hafi greint frá ofsóknum tiltekinna óvina fjölskyldunnar í heimaríki jafnframt sem heimili og land þeirra hafi verið tekið af þeim, heimilið sprengt í loft upp og fjölskyldumeðlimir þeirra drepnir. Kærendur hafi greint frá því að þau hafi flúið til […] og komið sjóleiðina til Grikklands þar sem öll fjölskyldan hafi verið handtekin og fangelsuð í um viku. Kærendur kveði að aðstæður í fangelsinu hafi verið slæmar og erfiðar þar sem fjölskyldan hafi sofið á gólfinu ásamt öðru fólki. Þá kveði þau að elsta barn þeirra A hafi nærri drukknað við handtökuna og ekki fengið viðeigandi læknishjálp í kjölfarið. Kærendur kveði að líf fjölskyldunnar hafi verið slæmt í Grikklandi þar sem ekkert húsnæði, framfærsla eða félagsleg aðstoð hafi verið í boði. Þá hafi þau ekki fengið atvinnuleyfi og fjölskyldan hafi þurft að treysta á framfærslu kirkjunnar og frjálsra félagasamtaka. Fjölskyldan hafi búið í gömlu óupphituðu skólahúsnæði þar sem þau hafi búið við sóðaskap og skort á öryggi. Kærendur hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjölskyldan mætt mismunun. M og K kveði að þau óttist tiltekinn óvin í Grikklandi sem hafi viljað drepa þau og fjölskyldu sína. M kveði að hann hafi leitað til lögreglunnar í Grikklandi þegar hann hafi séð viðkomandi á götum úti en lögreglan hafi ekki getað aðstoðað hann. M kveði að líf barna sinna í Grikklandi hafi verið hræðilegt auk þess sem börnin hafi ekki haft aðgang að skóla og hafist við í herbergi fjölskyldunnar í skólabyggingunni daglangt. Þá hafi börnum kærenda ekki verið veitt heilbrigðisþjónusta jafnframt sem K hafi ekki fengið viðeigandi mæðra- og ungbarnavernd þegar yngsta barn þeirra hafi fæðst. Kærendur kveði að börn þeirra hafi oft verið svöng og hrædd.

Í greinargerð kærenda eru gerðar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar. Kærendur hafi haldið því fram að þau hafi ekki sótt um alþjóðlega vernd í Grikklandi en samkvæmt svari frá grískum stjórnvöldum hafi þau sótt um alþjóðlega vernd þann 20. apríl 2017. Kærendur andmæla því að Útlendingastofnun meti framburð þeirra, hvað þetta varðar, ekki til þess fallinn að styrkja trúverðugleika frásagnar þeirra og vísa til þess að verulega skorti á að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu upplýstir um lagalega stöðu þeirra í Grikklandi. Vísa kærendur til þess að fólk mæti ýmsum hindrunum, lögfræðileg aðstoð sé af skornum skammti og skortur sé á túlkaþjónustu. Þá séu M og K lítið menntuð og ólæs sem leiði til þess að þau hafi átt í erfiðleikum með að afla sér upplýsinga um lagalega stöðu sína í Grikklandi. Kærendur vísa fullyrðingu Útlendingastofnunar á bug og telja hana ómálefnalega jafnframt sem þau telji að með þessu hafi stofnunin ekki lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Kærendur gera athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi ekki vísað til neinna atvika sem bendi til þess að þau hafi verið útilokuð frá þeim réttindum sem felist í dvalarleyfi þeirra eða þeirri félagslegu aðstoð sem þau eigi lögum samkvæmt tilkall til. Heimildir beri með sér að mikið atvinnuleysi sé í Grikklandi og erfitt sé að fá atvinnu. Þá mæti flóttafólk ýmsum hindrunum sem komi í veg fyrir að þessi hópur geti leitað að atvinnu. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar komi fram að kærendum standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi en í raun sé aðgengi flóttafólks að heilbrigðiskerfinu verulega takmarkað. Þá komi fram í ákvörðunum Útlendingastofnunar að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á félagslegri aðstoð og aðgengi að húsnæði. Kærendur vísa til þess að kröfur grískra stjórnvalda til þeirra sem sækja um félagslega aðstoð séu það miklar að einstaklingum með alþjóðlega vernd sé gert nær ómögulegt að uppfylla þær. Þá geti auk þess reynst erfitt að fá aðgang að þeim húsnæðisúrræðum sem sett hafi verið á fót vegna fjölda flóttafólks í Grikklandi. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar er vísað til þess að kærendur geti leitað til lögreglu eða annarra yfirvalda telji þau á sér brotið. Kærendur vísa þessu á bug og telja að samkvæmt heimildum verði innflytjendur o.fl. fyrir mismunun af hálfu lögreglunnar. Kærendur gera athugasemd við þá fullyrðingu að börn þeirra hafi aðgang að skóla og leikskóla í Grikklandi og vísa til þess að heimildir beri með sér að aðeins 43% flóttabarna séu raunverulega skráð til náms í Grikklandi.

Kærendur telji að þau séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga í ljósi líkamlegrar og andlegrar vanheilsu sinnar og vísa til þess að M glími við fötlun. Jafnframt telji þau að börn sín fimm séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna viðkvæmrar stöðu foreldra sinna auk þess sem þau séu ung og falli því í hóp barna sem séu í viðkvæmari stöðu en önnur börn. Kærendur gera athugasemd við fullyrðingar Útlendingastofnunar hvað varðar fötlun M og vísa til þess að fötlun sé ekki læknisfræðileg greining heldur afleiðing skerðinga og hindrana sem einstaklingur mætir. Kærendur vísa til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar sem lögfest er í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og áréttuð er í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Jafnframt vísa þau til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og athugasemda í frumvarpi við þá grein, þar sem kemur fram að nauðsynlegt sé að snemma í málsmeðferðinni fari fram heildstætt mat á aðstæðum hvers og eins umsækjanda um alþjóðlega vernd. Kærendur telji því að það falli innan verksviðs Útlendingastofnunar að tryggja að fram fari með aðstoð viðeigandi sérfræðinga einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá telji kærendur að ef Útlendingastofnun dragi fötlun M í efa hafi henni borið, samkvæmt rannsóknarskyldu 10. gr. stjórnsýslulaga, að varpa frekara ljósi á líkamlega skerðingu hans með því að hafa milligöngu um að M fengi tíma hjá þar til bærum sérfræðingi. Hafi því verið óforsvaranlegt hjá stofnuninni að velta sönnunarbyrðinni yfir á kærendur. Kærendur telji því um alvarlegan ágalla á ákvarðanatöku Útlendingastofnunar að ræða enda ljóst að rannsókn stofnunarinnar á stöðu M hafi verið ófullnægjandi. Kærendur gera athugasemd við þá röksemdarfærslu Útlendingastofnunar að M hafi átt kost á að leita til hérlendra heilbrigðisstofnana og vekja máls á þeim heilsufarsbrestum sem hann glími við. Kærendur vísa til þess að þau hafi margsinnis leitað til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja en ítrekað lent í erfiðleikum með að útskýra vandamál sín vegna tungumálaörðugleika og skorts á túlkaþjónustu. Þá gera kærendur athugasemd við það að tveir mismunandi fulltrúar Útlendingastofnunar hafi komið að málavinnslu í tilfelli kærenda og vísa til þess að einn fulltrúi tók viðtal við M og K og annar fulltrúi skrifaði ákvarðanirnar.

Kærendur fjalla um reglugerð nr. 276/2018 sem breytti reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Í reglugerðarbreytingunni felist skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem eigi sér ekki fullnægjandi stoð í settum lögum og gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Kærendur telji að þau viðmið sem komi fram í 32. gr. a reglugerðarinnar séu sett fram í dæmaskyni og því sé ekki um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Því geti þau atriði sem talin eru upp í dæmaskyni í reglugerðinni ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda í samræmi við ákvæði laga um útlendinga.

Krafa kærenda er í fyrsta lagi byggð á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og krefjast þess að mál þeirra og barna þeirra verði tekin til efnislegrar meðferðar með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur telji að íslensk stjórnvöld hafi lagt óeðlilega mikla áherslu á formlega eða lagalega stöðu þeirra sem hlotið hafi vernd í Grikklandi og að þau takmörkuðu úrræði sem hjálparsamtök bjóði upp á standi aðeins litlum hluta þessa hóps til boða. Kærendur telji að ekki skuli gera greinarmun á því hvort um sé að ræða umsækjanda um alþjóðlega vernd eða einstakling með alþjóðlega vernd þegar metið er hvort skilyrðum 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé fullnægt eða ekki. Í greinargerð er þess krafist að þegar litið sé til málsástæðna og krafna kærenda skuli það sem börnum kærenda sé fyrir bestu, haft að leiðarljósi. Tekið skuli tillit til þeirrar verndar sem þau eigi rétt á samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og reglugerðum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld eru skuldbundin af samkvæmt þjóðarétti. Vísi kærendur til þess að börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila sinna eða ekki. Það sé ekki börnum kærenda fyrir bestu að vera send aftur með foreldrum sínum til Grikklands og andstætt öryggi þeirra, velferð og þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærendur krefjast þess með vísan til rannsóknarskyldu stjórnvalda að kærunefnd útlendingamála hlutist til um öflun sálfræðimats á umsækjendum áður en ákvörðun verði tekin í málinu. Jafnframt er þess krafist að kærunefnd leggi mat á líkamlega skerðingu og þjónustuþörf M áður en ákvörðun verði tekin í málinu. Kærendur telji að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga beri að túlka svo að um sé að ræða heimild handa stjórnvöldum til að synja umsækjendum um alþjóðlega vernd um efnislega meðferð umsókna sinna en ekki skyldu. Því sé um að ræða undantekningarreglu sem skuli túlka þröngt. Þá vísa kærendur til úrskurða kærunefndar frá 25. júlí 2019 nr. 368/2019 og 369/2019 og telja að um sambærileg mál sé að ræða en kærendur í þessum málum voru af sama þjóðerni og því eigi sömu sjónarmið við hvað varðar hættu á áreiti og mismunun. Þá vísa kærendur einnig til úrskurðar kærunefndar frá 27. september 2018 nr. 393/2018 og telja að aðstæður í málunum svipi verulega til aðstæðna kærenda og barna þeirra. Kærendur vísa einnig til úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 nr. 550/2017 og 552/2017 og úrskurð frá 24. október 2017 nr. 583/2017 og 586/2017. Telji þau að í ljósi almennra aðstæðna, aðbúnaðar flóttafólks í Grikklandi og viðkvæmrar stöðu umsækjenda sé hægt að jafna máli þeirra við ofangreinda úrskurði. Telji kærendur fullvíst að þau muni verða fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi verði þeim gert að snúa þangað aftur auk þess sem staða þeirra muni verða verulega síðri en staða almennings þar í landi.

Krafa kærenda er í öðru lagi byggð á því að taka skuli mál þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement sem kveði á um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu. Kærendur telji að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Jafnframt samræmist aðstæður flóttafólks í Grikklandi skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Endursending kærenda til Grikklands teljist því vegna aðbúnaðar og aðstæðna þar í landi og þeirra ofsókna sem bæði umsækjendur um alþjóðlega vernd og viðurkenndir flóttamenn þar sæta vera brot á 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Að auki myndi ákvörðun um að senda kærendur til Grikklands brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Í andmælum kærenda sem bárust kærunefnd vegna athugasemda Útlendingastofnunar við greinargerð kærenda til kærunefndar er m.a. þeirri afstöðu Útlendingastofnunar andmælt að ekki hafi verið nægjanlegur grundvöllur til að slá því föstu að M glími við líkamlega skerðingu. Telja kærendur að gögn málsins sýni fram á að þau hafi mætt miklum hindrunum þegar þau reyndu að leita sér heilbrigðisþjónustu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þá vísa kærendur jafnframt til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-6459/2019 sem kveðinn var upp þann 20. desember 2019 þar sem dómurinn taldi ríka rannsóknarskyldu hafa hvílt á nefndinni til að tryggja að viðunandi upplýsingar um andlega heilsu stefnanda lægju fyrir áður en tekin yrði afstaða til umsóknar hennar. Telja kærendur að í ljósi framangreinds dóms sé líkamleg skerðing M þess eðlis að Útlendingastofnun hafi borið að hafa milligöngu um að hann fengi tíma hjá þar til bærum sérfræðingi sem gæti útlistað nánar í hverju skerðing hans fælist og með því uppfyllt rannsóknarskyldu sína.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, þ. á m. viðtöl við kærendur og gögn um heilsufar þeirra og barna þeirra. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A, B, C, D og E sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B, C, D og E verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B, C, D og E eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna hlutu kærendur og börn þeirra réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi þann 3. janúar 2019 og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 3. janúar 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur og börn þeirra njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Kærendur eru hjón með fimm börn sem eru […]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi M m.a. greint frá því að hann hafi orðið fyrir sprengingu í heimaríki […] og hafi slasast illa í kjölfarið. […]. M hafi greint frá því að andleg heilsa hans sé slæm […]. […]. Í gögnum um heilsufar M kemur fram að hann sé með […] sem hann kveði að sé vegna framangreindrar sprengingar. Í gögnum um heilsufar K kemur fram að hún hafi greint frá því að vera með […] og taki lyf vegna hennar. […]. Þá hafi K greint frá því að andleg heilsa hennar sé slæm vegna tilhugsunarinnar um að vera send aftur til Grikklands. Af gögnum máls má ráða að M og K eru ólæs.

Í viðtölum við kærendur hjá Útlendingastofnun hafi einnig komið fram að börn þeirra séu almennt heilbrigð. Samkvæmt frásögn K, hafi A orðið fyrir áfalli þegar hann hafi orðið vitni af því þegar faðir hans hafi slasast […]. Í heilsufarsgögnum B kemur fram að hún sé með ör […], hugsanlega eftir aðgerð, hún geti því ekki […] og þurfi mögulega tilvísun […]. Í heilsufarsgögnum D kemur fram að hann hafi leitað til Heilsugæslunnar í Keflavík vegna […]. Þá kemur fram í heilsufarsgögnum E að hún hafi líklega ekki farið í ungbarnavernd í Grikklandi. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi börnin A, B og C m.a. greint frá því að þeim hafi liðið illa í Grikklandi.

Í málinu liggja fyrir talsvert af gögnum um heilsufar kærenda og barna þeirra. Þá tekur kærunefnd fram að kærendum hefur við meðferð málsins verið leiðbeint um framlagningu frekari gagna í málinu, sbr. t.d. tölvupóst kærunefndar dags. 13. desember 2019. Það er mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem liggja fyrir, að málið sé nægjanlega upplýst er varðar heilsufar þeirra.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 2020).

Af framangreindum gögnum verður ráðið grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Þá segir á vefsvæði alþjóðasamtakanna Doctors of the World að árið 2016 hrintu samtökin af stað herferð með það að markmiði að bæta mæðravernd til flóttakvenna í Grikklandi. Einnig kemur fram að þrátt fyrir að margt hafi áunnist í þeim efnum eiga þungaðar konur enn á hættu að fá ekki fullnægjandi mæðravernd og ungbarnavernd þar í landi. Þá getur flóttafólk leitað til alþjóðasamtaka og frjálsra félagasamtaka í Grikklandi sem m.a. veita nýbökuðum mæðrum og ungabörnum viðeigandi aðstoð, t.a.m. upplýsingar og aðstoð í tengslum við brjóstagjöf og næringu. Jafnframt útvega þau barnaföt, bleyjur og annan búnað til að koma til móts við þarfir þeirra, aðstoðin er þó háð takmörkunum.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veita einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa.

Í skýrslu Asylum Information Database, kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það þá kemur fram að einungis rúmlega helmingur barna á flótta sækir skóla í Grikklandi. Er ástæðan fyrir þessu m.a. rakin til tungumálahindrana og þess að námið hentar ekki endilega börnum sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu hjá kærendum að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða að þær samrýmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda og barna þeirra. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur og börn þeirra eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu þ. á m. lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málanna að kærendur hafi aðgang að viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna, þ.m.t. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum. Auk þess telur kærunefnd að K muni hafa aðgang að fullnægjandi ungbarnavernd fyrir yngsta barn sitt í Grikklandi. Kærunefnd telur gögn málanna ekki benda til þess að kærendur og börn þeirra glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, en í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í málum kærenda og barna þeirra er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu.

Kærendur hafa m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málum þeirra þar sem þau hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar, þó að þau þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu. Þá má einnig ráða að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum sama rétt til menntunar fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið eigi þau rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar í ljósi þeirra gagna sem hafa verið lögð fram, að aðstæður þeirra, þ.m.t. með tilliti til heilsufars, séu ekki slíkar að þau geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem þau eiga lagalegan rétt á i Grikklandi og þau þurfa á að halda. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Kærunefnd tekur fram að kærendum var leiðbeint þann 13. desember 2019 um framlagningu frekari gagna, m.a. um heilsufar fjölskyldunnar, en engin frekari gögn bárust. Auk þess benda gögn máls til þess að fjölskyldan dveljist ekki lengur hér á landi.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Eins og framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að félagsþjónustu á vegum gríska ríkisins og grískir ríkisborgarar. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málanna því ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærendur og börn þeirra handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafa kærendur gilt dvalarleyfi þar í landi til ársins 2022. Þá hafi þau dvalið í Grikklandi í rúm tvö ár og komu hingað í sameiningu. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreinda upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málanna að flutningur kærenda til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kærenda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna tilvísunar í greinargerð kærenda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. 393/2018 frá 27. september 2018 og úrskurða nr. 368/2019 og 369/2019 frá 25. júlí 2019 tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kærenda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda séu einstaklingsbundnar aðstæður þeirra ólíkar. Þá telur kærunefnd að aðstæður kærenda séu ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017 og úrskurðum nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017, m.a. þar sem ekki sé um að ræða sömu viðtökuríki. Telur kærunefnd því að ekki sé hægt að jafna stöðu kærenda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun dagana 8. og 9. júlí ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 4. júlí 2019. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum. Ljóst er af gögnum málanna að ákvæðið eigi ekki við um kærendur enda séu ekki liðnir 10 mánuðir frá því umsóknir þeirra bárust íslenskum stjórnvöldum.

Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gera kærendur í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, m.a. við trúverðugleikamat stofnunarinnar, við mat stofnunarinnar á stöðu kærenda í viðtökuríki og við beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga. Þá gera kærendur athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og byggja m.a. á því að ekki hafi farið fram heildstætt mat á heilsufari M. Auk þess sem kærendur gera athugasemd við það mat stofnunarinnar að kærendur teljist ekki einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Eins og framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kærenda og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málunum byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Vegna athugasemda í greinargerð kærenda um að ekki hafi farið fram heildstætt mat á aðstæðum þeirra í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga tekur kærunefnd fram að kærendum hafi á öllum stigum málsins verið leiðbeint um framlagningu gagna og í málum þeirra liggja fyrir gögn um heilsufar þeirra sem tekin hefur verið afstaða til. Verður því ekki fallist á það með kærendum að annmarki hafi verið á rannsókn málsins hjá Útlendingastofnun að þessu leyti. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málanna og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málanna komu kærendur hingað til lands þann 3. júlí 2019 ásamt börnum sínum og sóttu um alþjóðlega vernd þann 4. júlí 2019. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                             Árni Helgason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum