Hoppa yfir valmynd
29. október 2018 Utanríkisráðuneytið

Tólf þúsund Norðmenn í næturgöngu til að minna á Heimsmarkmiðin

Ljósmynd fyrir NORAD: Christofer Krook. - mynd

Eftir að myrkur skall á í Osló, höfuðborg Noregs, síðastliðið laugardagskvöld þrömmuðu um tólf þúsund manns upp Ekebergásinn til þess að minna á sautján Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Ekebergásinn er á að giska tvöföld Öskjuhlíð í Osló en Norðmenn hafa á síðustu árum farið í fjölmargar fjallagöngur að kvöldlagi með luktir á höfði til að halda á lofti Heimsmarkmiðunum. Þetta var í fyrsta sinn sem slík kvöldganga er farin í Osló.

„Við höfum skipulagt næturgöngur um allan Noreg til að vekja Norðmenn til umhugsunar um mikilvægustu áætlun heimsins. Það er algerlega magnað að rúmlega tólf þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni í Osló á kaldasta haustkvöldi ársins,“ segir Jon Lomøy framkvæmdastjóri NORAD, norskrar fræða- og eftirlitsstofnunar um þróunarsamvinnu.

„Fólk safnaðist saman rétt fyrir klukkan sjö á laugardagskvöldið við ástarstíginn svokallaða sem liggur í bugðum upp hlíðina, upplýstur af sautján stórum tengingum með jafnmörgum Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna,“ segir Gunnar Salvarsson sérfræðingur í utanríkisráðuneytinu sem tók þátt í göngunni. „Þar sem sjálfri göngunni lauk var komið fyrir risastóru sviði og boðið upp á ávörp, kvikmyndabrot um Heimsmarkmiðin og tónleika með hipp-hopp listamönnunum Arif og Lars Vaular. Norðmenn drógu upp bakpokum sínum heitt vatn, berjadrykki og kex og héldu þannig á sér hita í næturhúminu þar sem hitastigið dansaði í kringum núll gráðurnar,“ bætir hann við.

Norðmenn hafa notað þessa aðferð til að kynna Heimsmarkmiðin fyrir norsku þjóðinni en myndir af þúsundum upplýstum göngumönnnum á fjöllum í Noregi hafa vakið mikla athygli á síðustu árum. Næturgöngurnar hafa líka aukið vitneskju meðal norsku þjóðarinnar á Heimsmarkmiðunum og samkvæmt norsku Hagstofunni þekkir nú annar hver Norðmaður til markmiðanna en fyrir tveimur árum kváðust aðeins 35% þekkja til þeirra. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup hér heima, sem gerð var síðastliðið vor, kváðust 57,4% Íslendinga þekkja eða hafa heyrt um Heimsmarkmiðin.

Alls hafa 37 þúsund manns tekið þátt í þessum viðburðum í Noregi og meðal fjalla sem hafa verið klifin eru Gaustatoppen, Keiservarden í Bodø og Aksla við Álasund. NORAD og borgarstjórn Osló stóðu að göngunni upp Ekebergásinn í samstarfi við eigendur svæðisins. Þá komu sjálfboðaliðar frá ýmiss konar frjálsum félagasamtökum að undirbúningi og skipulagningu þessa vel heppnaða viðburðar.

  • $alt
  • $alt
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum