Hoppa yfir valmynd
14. júní 2021 Utanríkisráðuneytið

Barnaþrælkun færist í aukana á nýjanleik

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Börnum sem neyðast til að vinna hefur fjölgað um 8,4 milljónir á síðustu fjórum árum og samkvæmt nýjum gögnum frá Alþjóða vinnumálastofnuninni (ILO) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) eru alls 160 milljónir barna í nauðungarvinnu. Í nýrri skýrslu fyrrnefndra stofnana segir að ástæða sé til að óttast að barnaþrælkun færist enn meira í aukana vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Alþjóðadagur í baráttunni gegn barnaþrælkun var síðastliðinn laugardag, 12. júní. Í skýrslu ILO og UNICEF kemur fram að í fyrsta sinn um tuttugu ára skeið hafi barnaþrælkun aukist en á tímabilinu frá 2000 til 2016 fækkaði börnum í nauðungarvinnu um 94 milljónir.

Í skýrslunni er bent á umtalsverða fjölgun barna á aldrinum fimm til ellefu ára í nauðungarvinnu en börn á þessum aldrei eru nú um helmingur allra barna sem falla undir skilgreiningu um barnaþrælkun. Þá hefur börnum á aldrinum fimm til sautján ára sem vinna hættuleg störf – líkleg til að skaða heilsu þeirra, öryggi eða siðferði – fjölgað um 6,5 milljónir frá árinu 2016 og teljast nú vera alls 79 milljónir.

Ástandið að þessu leyti er verst í Afríku sunnan Sahara en þar fara saman mikil fólksfjölgun, endurtekin áföll, mikil fátækt og ófullnægjandi barnavernd, sem leiða til þess að börnum í nauðungarvinnu hefur fjölgað um 16,6 milljónir á síðustu fjórum árum.

Í skýrslunni segir að óttast sé að barnaþrælkun aukist vegna heimsfaraldursins. Níu milljónir barna til viðbótar eigi á hættu að vera þröngvað til starfa fyrir árslok 2022 og spálíkan geri ráð fyrir að sú tala geti hækkað upp í 46 milljónir.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum