Hoppa yfir valmynd
27. september 2022 Innviðaráðuneytið

Framlög vegna þjónustu við fatlað fólk áætluð tæpir 22,5 milljarðar árið 2023

Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2023 nema tæplega 22,5 milljörðum kr. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, samþykkti nýlega tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á næsta ári.

Við útreikning framlaganna skiptast 88% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1,25% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2021 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2021 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2023. Leiðréttingin nemur 70 m.kr. og nema áætluð framlög næsta árs því 22.470 m.kr.

Framlögin eru greidd mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í nóvember 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum