Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 100/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 22. apríl 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 100/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19110054

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 26. nóvember 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisfangslaus (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. nóvember 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar á Íslandi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.            Málsmeðferð

Kærandi sótti upphaflega um alþjóðlega vernd hér á landi þann 15. september 2017. Kærunefnd útlendingamála staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. janúar 2018, um að taka umsókn kæranda ekki til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Belgíu þann 20. mars 2018 með úrskurði nefndarinnar nr. 131/2018. Kærandi sótti í annað sinn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 7. ágúst 2018. Útlendingastofnun ákvað þann 10. desember 2018 að taka umsókn hans ekki til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Belgíu. Var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 59/2019 þann 12. febrúar 2019.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi í þriðja skiptið þann 18. september 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 23. september 2019, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Belgíu. Þann 26. september 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Belgíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá belgískum yfirvöldum, dags. 30. september 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 7. nóvember 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 12. nóvember 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 26. nóvember 2019 til kærunefndar útlendingamála. Kærandi skilaði ekki inn greinargerð í málinu en vísaði til greinargerðar sem hann hafði lagt fram þegar mál hans var til meðferðar hjá Útlendingastofnun.

III.           Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að belgísk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Belgíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Belgíu.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Með tölvupósti, dags. 6. desember 2019, tilkynnti talsmaður kæranda kærunefnd að sérstök greinargerð yrði ekki lögð fram í máli kæranda heldur var vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar. Í henni kemur fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi hann m.a. greint frá því að hann hafi upplifað erfiðar aðstæður í Belgíu. Hafi kærandi verið allslaus og án húsaskjóls, matar og framfærslu. Telji kærandi að hann muni lenda á götunni og ekki njóta aðgengis að heilbrigðisþjónustu verði hann endursendur til Belgíu. Þá greindi kærandi frá andlegri vanlíðan auk sjálfsskaða. Óskaði kærandi eftir tíma hjá sálfræðingi eða geðlækni.

Kærandi byggir á því að umsókn hans um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar hér á landi þar sem sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum. Hafnar kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferlisins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Telur kærandi að lögskýringargögn beri það með sér að stjórnvöldum sé eftirlátið mat og þau hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, m.a. reglum mannréttindasáttmála Evrópu. Þá byggir kærandi á því að líta skuli framhjá reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga með áorðnum breytingum, að því leyti sem hún þrengir rétt umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi til að fá mál sín tekin til efnismeðferðar hér á landi. Í því sambandi vísar kærandi til lagaáskilnaðarreglu 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og lögmætisreglu íslenskrar stjórnskipunar.

Hvað varðar einstaklingsbundnar aðstæður kæranda vísar hann fyrst og fremst til þeirra aðstæðna sem hann hafi búið við í Belgíu. Hafi kærandi m.a. búið á götunni og upplifað fordóma. Heimildir bendi til þess að það skorti búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu og því séu líkur á því að kærandi endi aftur á götunni verði hann endursendur þangað. Framangreint beri með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar vegna alvarlegrar mismununar í Belgíu, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með áorðnum breytingum. Vegna þessa sé íslenskum stjórnvöldum skylt að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V.            Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Belgíu á umsókn kæranda er byggð á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja belgísk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er einstæður karlmaður á […]aldri. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann upplifði verki í líkamanum, þ. á m. kvið- og bakverki. Þá greindi kærandi frá andlegri vanlíðan og sjálfsskaða. Kærandi óskaði þá eftir því að fá að hitta sálfræðing eða geðlækni.

Við meðferð málsins hefur kærandi ekki lagt fram heilsufarsgögn. Kæranda var bæði leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun og kærunefnd. Jafnframt upplýsti kærandi kærunefnd með tölvupósti dags. 10. febrúar 2020 að ekki yrðu lögð fram frekari gögn í máli kæranda. Þá liggja fyrir hjá kærunefnd heilsufarsgögn kæranda í tengslum við fyrri umsóknir hans um alþjóðlega vernd hér á landi. Það er mat kærunefndar að mál kæranda sé nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og ekkert sem bendi til þess að frekari gögn um heilsufar hans muni hafa áhrif á niðurstöðu í málinu.

Aðstæður í Belgíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Belgíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  •         Amnesty International Report 2017/18 – Belgium (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  •          Asylum Information Database, Country Report: Belgium (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2020);
  •         Belgium 2019 Human Rights Report (United States Department of State, 11. mars 2020);
  •         Freedom in the World 2019 – Belgium (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  •         The Organisation of Reception Facilities in Belgium (European Migration Network, ágúst 2013);
  •         Upplýsingar af vefsíðu Global Detention Project (www.globaldetentionproject.org) og
  •          Upplýsingar af heimasíðu Fedasil (www.fedasil.be).

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar geta sótt um alþjóðlega vernd á flugvellinum við komuna til Belgíu eða hjá útlendingastofnun (f. Office des étrangers) þar í landi. Stofnun sem fer með umsóknir um alþjóðlega vernd (f. Commissariat général aux réfugiés et aux apatrides (CGRA)) tekur ákvarðanir um umsóknir um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi. Ákvarðanir stofnunarinnar eru kæranlegar til stjórnsýsludómstóls í útlendingamálum (f. Conseil du contentieux des étrangers (CCE)). Möguleiki er á því að kæra ákvarðanir CCE til æðra setts stjórnsýsludómstóls. Æðri dómstóllinn tekur ekki efnislega á málum en úrskurðar um það hvort CCE hafi fylgt formkröfum. Hafi formkröfum ekki verið fylgt getur dómstóllinn ógilt úrskurð CCE og sent málið til nýrrar endurskoðunar. Fái umsækjendur endanlega synjun á umsókn sinni eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn hjá útlendingastofnun. Þá getur jafnframt verið litið á umsóknir umsækjenda sem eru endursendir til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sem viðbótarumsóknir. CGRA leggur mat á það hvort viðbótarumsókn sé tæk til meðferðar og skal það gert innan 10 daga. Grundvallast matið m.a. á því hvort nýjar upplýsingar liggi fyrir í málinu sem auki möguleika viðkomandi umsækjanda á því að fá alþjóðlega vernd. Sé umsóknin samþykkt fer málið í flýtimeðferð og ákvörðun skal tekin innan 15 virkra daga. Sé viðbótarumsókn samþykkt á umsækjandi rétt á félagslegri aðstoð, en umsækjendur eiga þó alltaf rétt á heilbrigðisþjónustu og lögfræðiaðstoð. Umsækjendur geta borið mál sitt undir belgíska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds á öllum stigum málsins, þ. á m. við að leggja fram viðbótarumsókn.

Af framangreindum gögnum um málsmeðferð í Belgíu má ráða að þar fari fram fullnægjandi mat á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu t.d. með því að leggja fyrir umsækjendur skimunarpróf. Þá geta læknar sem þjónusta umsækjendur þar í landi komið á framfæri tillögum að breyttri og bættri þjónustu fyrir umsækjendur í viðkvæmri stöðu. Þá eru starfandi hópar innan CGRA sem aðstoða starfsfólk við að meta einstaklingsbundnar aðstæður og þjónustustörf umsækjenda um alþjóðlega vernd sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þessir hópar eru þjálfaðir í að meta aðstæður einstaklinga í viðkvæmri stöðu m.a. með viðtölum.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Belgíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á vasapeningum og húsaskjóli á vegum stjórnvalda en flestir umsækjendur dvelja í móttökumiðstöðvum eða íbúðum. Í skýrslu European Council on Refugees and Exiles frá apríl 2020 kemur fram að í janúar 2020 hafi búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki verið fullnýtt en þó hafi tilvik komið upp þar sem umsækjendur hafi ekki haft aðgang að búsetuúrræði vegna skorts á plássi. Hafi umsækjandi fengið lokasynjun á umsókn sinni, og möguleikar hans til að kæra ákvörðunina eru fullnýttir, á hann rétt á húsnæði á vegum yfirvalda þar til frestur hans til að yfirgefa landið hefur runnið út en slíkur frestur er að jafnaði 0 til 30 dagar. Sé umsækjanda veitt vernd á hann rétt á að dvelja áfram í húsnæðisúrræði sínu í tvo mánuði á meðan hann finnur sér annað húsnæði. Þá er umsækjendum um alþjóðlega vernd tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þeim að kostnaðarlausu, á meðan mál þeirra er til meðferðar en einnig eftir að umsókn er synjað. Aðgengi umrædds hóps að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu er tryggt með þarlendri löggjöf sem er fylgt eftir í framkvæmd. Í sumum tilvikum getur það þó verið vandkvæðum bundið fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að nálgast téða heilbrigðisþjónustu, t.a.m. fyrir þá umsækjendur sem búa ekki í móttökumiðstöðvum. Þá gætu umsækjendur þurft að leggja út fyrir lækniskostnaði. Í framangreindum gögnum kemur fram að rekin séu úrræði, m.a. miðstöðvar á vegum stjórnvalda, vegna andlegra veikinda en þar séu gjarnan langir biðlistar sem takmarki oft á tíðum aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að þeim.

Af framangreindum gögnum má ráða að í einhverjum tilvikum séu umsækjendur um alþjóðlega vernd settir í varðhald við komuna til Belgíu. Þessir einstaklingar eiga möguleika á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla og eiga þeir rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð. 

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Belgíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Belgíu, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að gögn málsins bendi ekki til þess að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður hans geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn um heilsu sína þrátt fyrir leiðbeiningar þar um. Framangreind gögn um aðstæður í Belgíu benda að auki til þess að kærandi hafi aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Benda gögn málsins enn fremur til þess að óttist kærandi um öryggi sitt í Belgíu geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum yfirvöldum.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Felast aðgerðirnar m.a. í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins lokað tímabundið fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og liggur ekki fyrir hvenær endursendingar muni hefjast að nýju. Á þetta við um Ísland og ríkir því ákveðin óvissa hér á landi um það hvenær framkvæmd á endursendingum hefjist að nýju. Yfirvöld í Belgíu hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, m.a. með ferðabanni til og frá landinu (að undanskildum ferðum sem talist geta nauðsynlegar) auk þess sem fólki er gert að halda sig heima og er aðeins heimilt að yfirgefa heimili sín vegna nauðsynlegra athafna, s.s. matar- og lyfjakaup. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við sterkan efnahag í alþjóðlegu samhengi, stöðuga stjórnarhætti og sterkar lýðræðislegar hefðir. Að mati kærunefndar er ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað á meðan mál hans er þar til meðferðar.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að álykta að endursendingar til viðtökuríkisins verði ekki hafnar áður en umræddur frestur rennur út.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Belgíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun, þegar fyrri umsóknir hans voru til meðferðar hér á landi, eiga vini á Íslandi. Er það mat kærunefndar að vináttutengsl teljist ekki til sérstakra tengsla í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2019 um breyttar aðstæður frá fyrri umsóknum bar kærandi ekki fyrir sig að hafa önnur sérstök tengsl hér á landi. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 18. september 2019.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 18. september 2019 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Belgíu eins fljótt og unnt er, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa belgísk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Belgíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                Árni Helgason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum