Hoppa yfir valmynd
2. september 2020 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 209 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. september 2020. Þetta er annar markaðurinn með greiðslumark með því fyrirkomulagi sem samið var um við endurskoðun á samstarfssamningi um nautgriparækt milli ríkis og bænda á síðasta ári.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða þessa markaðar nú fyrir.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. september 2020 kom fram jafnvægisverð á markaði krónur 294 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

 

Ráðherra ákvað að tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga að setja hámarksverð sem var 294 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. Eins og sjá má af jafnvægisverðinu tóku tilboð nær undantekningarlaust mið af settu hámarksverði.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 13.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 209.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði voru 3.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 845.349 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru  9.762.556 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 845.349 lítrar að andvirði 248.532.606 kr.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 42.499 lítrar.  Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 19.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði 294  kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið , mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum