Hoppa yfir valmynd
12. mars 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 75/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 12. mars 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 75/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20020013

Beiðni [...] um endurupptöku

 

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 347/2019, dags. 25. júlí 2019, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. apríl 2019, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 28. desember 2018. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 29. júlí 2019. Þann 6. ágúst 2019 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var synjað þann 22. ágúst 2019. Þann 6. febrúar 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku máls hans ásamt greinargerð.

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi óskar eftir því að kærunefnd felli ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og leggi fyrir stofnunina að taka umsókn hans til efnismeðferðar á grundvelli meginreglu 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á því að málsatvik hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli hans var kveðinn upp þann 25. júlí 2019. Ljóst sé að fresturinn til að endursenda kæranda til Ítalíu sé runninn út, sbr. 2. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin) og beri íslensk stjórnvöld nú ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt þessu sé hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar sem kærunefnd staðfesti, nú óframkvæmanleg. Beri íslenskum stjórnvöldum því að beita meginreglu 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda eigi undantekningarregla c-liðar sömu málsgreinar ekki lengur við í málinu, og taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að taka umsókn um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (Dyflinnarreglugerðin), sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Þann 25. janúar 2019 samþykktu ítölsk stjórnvöld að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd. Byggði samþykki Ítalíu á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skal flutningur aðila til viðtökuríkis fara fram í síðasta lagi innan sex mánaða frá því að annað aðildarríki samþykkir beiðni um að taka viðkomandi í umsjá eða taka við honum aftur, eða frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru eða endurskoðun ef um er að ræða áhrif til frestunar í samræmi við 3. mgr. 27. gr. Í 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar segir að fari flutningur ekki fram innan sex mánaða frestsins falli niður skylda aðildarríkisins, sem ber ábyrgð, að taka við einstaklingnum aftur og færist ábyrgðin til þess aðildarríkis sem lagði fram beiðnina. Þennan frest má framlengja í eitt ár að hámarki ef ekki getur orðið af flutningnum vegna þess að hlutaðeigandi einstaklingur er í fangelsi eða í átján mánuði að hámarki ef hann hleypst á brott. Í úrskurði kærunefndar nr. 237/2019 frá 9. maí 2019 ákvað kærunefnd að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu ítölsk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda þann 25. janúar 2019. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda þann 29. júlí 2019. Af því leiðir að ábyrgð ítalskra stjórnvalda til að taka við umsækjanda samkvæmt ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar féll niður sex mánuðum síðar, þann 29. janúar 2020, sbr. 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.

Gögn máls benda ekki til þess að fresturinn hafi verið framlengdur á grundvelli lokamálsliðar 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar eða að þær aðstæður sem þar eru nefndar séu fyrir hendi sem gæti framlengt frestinn samkvæmt ákvæðinu.

Að öllu framangreindu virtu er fallist á kröfu kæranda um endurupptöku málsins.

Samkvæmt framansögðu er ekki lengur fyrir hendi heimild til að krefja ítölsk stjórnvöld um viðtöku á kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Umsókn kæranda um alþjóðlega vernd skal því tekin til efnismeðferðar, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Gögn málsins benda ekki til þess að ákvæði a- eða b-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna eigi við í máli hans. Er því niðurstaða kærunefndar útlendingamála að fella ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar úr gildi og leggja fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellants request for re-examination of his case is granted.The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant’s application for international protection in Iceland.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                                                                 Bjarnveig Eiríksdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum