Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Vísindasiðanefnd skipuð til næstu fjögurra ára

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö manna vísindasiðanefnd til næstu fjögurra ára. Hlutverk nefndarinnar er að meta vísindarannsóknir á heilbrigðissviði og tryggja að þær samrýmist vísindalegum og siðfræðilegum sjónarmiðum.

 

Nefndin er skipuð samkvæmt 9. gr. laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði nr. 44/2014. Auk fyrrgreinds mats á vísindarannsóknum skal nefndin meta samstarfsverkefni, fjölþjóðlegar rannsóknir, klínískar lyfjarannsóknir og aðrar áætlanir um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði sem ekki falla undir verksvið siðanefnda heilbrigðisrannsókna samkvæmt 11. gr. laganna. Nefndinni er einnig ætlað að taka þátt í almennri og fræðilegri umræðu á vettvangi lífsiðfræði, veita ráðgjöf og birta leiðbeinandi álit um viðfangsefni á verksviði nefndarinnar. Líkt og segir í lögunum skal þess gætt við skipun nefndarinnar að í henni eigi sæti einstaklingar með sérþekkingu á sviði aðferðafræði heilbrigðisvísinda, siðfræði, lögfræði og persónuverndar.

Formaður nýskipaðrar vísindasiðanefndar er Sunna Snædal Jónsdóttir. Aðrir nefndarmenn eru;

  • Rögnvaldur G. Gunnarsson, skipaður án tilnefningar,
  • Una Strand Viðarsdóttir, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
  • Flóki Ásgeirsson, tilnefndur af dómsmálaráðuneyti,
  • Védís Helga Eiríksdóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis,
  • Sigurður Guðmundsson, tilnefndur af Læknadeild Háskóla Íslands
  • Henry Alexander Henrysson, tilnefndur af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Varamenn

  • Reynir Tómas Geirsson, skipaður án tilnefningar,
  • Hafrún Kristjánsdóttir, skipuð án tilnefningar,
  • Stefán Baldursson, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti,
  • Svala Ísfeld Ólafsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneyti,
  • Elías Freyr Guðmundsson, tilnefndur af Embætti landlæknis,
  • Guðrún Valgerður Skúladóttir, tilnefnd af Læknadeild Háskóla Íslands,
  • Helga Þorbergsdóttir, tilnefnd af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Vefur vísindasiðanefndar

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum