Hoppa yfir valmynd
30. maí 2017 Forsætisráðuneytið

Nýtt Jafnréttisráð skipað

Ráðherra ásamt Magnúsi Geir, formanni Jafnréttisráðs og Tinnu Traustadóttur varaformanni ráðsins - myndVelferðarráðuneytið
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað nýtt Jafnréttisráð samkvæmt lögum og er skipunartíminn til næstu alþingiskosninga. Formaður Jafnréttisráðs er Magnús Geir Þórðarson og varaformaður Tinna Traustadóttir.

Ráðherra átti fund með Magnúsi Geir og Tinnu í kjölfar skipunar ráðsins þar sem þau ræddu um verkefnin framundan. Ráðherra gerði að umtalsefni hvað mikilvægi Jafnréttisráðs eykst stöðugt og ræddi um að aukin áhersla á jafnréttismál í velferðarráðuneytinu kalli á mikla virkni ráðsins á næstu misserum:  „Ég er mjög þakklátur því frábæra fólki sem hefur tekið að sér að leiða starf ráðsins á þessu kjörtímabili og spenntur fyrir samstarfinu framundan“ segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttisráðherra.

Félags- og jafnréttismálaráðherra skal í kjölfar alþingiskosninga skipa ellefu manna Jafnréttisráð samkvæmt 8. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008. Ráðið skal starfa í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera ráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs til ráðgjafar við stefnumótun í málum sem tengjast jafnrétti kynjanna. Sérstök áhersla skal lögð á að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Þá skal Jafnréttisráð undirbúa jafnréttisþing í samráði við ráðherra og leggja fyrir það skýrslu um störf sín. Jafnréttisþing skal boða innan árs frá alþinigskosningum og aftur að tveimur árum liðnum.

Jafnréttisráð er svo skipað:

Aðalmenn

  • Magnús Geir Þórðarson, skipaður án tilnefningar, formaður
  • Maríanna Traustadóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Þórunn Sveinbjarnardóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Pétur Reimarsson, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
  • Einar Mar Þórðarson, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
  • Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, tiln. af Samtökum um kvennaathvarf og Stígamótum
  • Kristín I. Pálsdóttir, tiln. af Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
  • Hróðmar Dofri Hermannsson, tiln. af Félagi um foreldrajafnrétti
  • Anna Guðrún Björnsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Guðrún Þórðardóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands
  • Tatjana Latinovic, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands

 Varamenn

  • Tinna Traustadóttir, án tilnefningar, varaformaður
  • Jóhann R. Sigurðsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Hlöðver Sigurðsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Kristín Þóra Harðardóttir, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
  • Halldóra Friðjónsdóttir, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
  • Sigþrúður Guðmundsdóttir, tiln. af Samtökum um kvennaathvarf og Stígamótum
  • Kristinn Schram, tiln. af Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
  • Guðný S. Bjarnadóttir, tiln. af Félagi um foreldrajafnrétti
  • Bjarni Ómar Haraldsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands
  • Una Hildardóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum