Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2010 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 7. janúar 2010

 

Ár 2009, fimmtudaginn 7. janúar, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Ágústa Þorbergsdóttir, Katrín Axelsdóttir og Trausti Fannar Valsson.

 

 

Mál nr. 77/2009                     Millinafn:         Bót

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru neðangreind:

(1)           Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

(2)           Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

(3)           Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

(4)           Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Nafnið Bót hefur unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna og er því ekki heimilt sem millinafn. Nafnið Bót þegar kemur fyrir í Landnámu sem kvenkyns eiginnafn. Millinafnið Bót uppfyllir þannig ekki skilyrði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Bót er hafnað. Vegna þess máls hefur mannanafnanefnd ákveðið að úrskurða nafnið Bót (kvk.) á mannanafnaskrá sem eiginnafn.

 

 

Mál nr. 1/2010                       Eiginnafn: Kelly 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Enn fremur segir í 5. gr. laganna: „Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.“

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um manna­nöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur, sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006, og sem byggðar eru á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.      Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10‑14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.      Það er nú borið af 5‑9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.      Það er nú borið af 1‑4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.      Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703‑1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Eiginnafnið og rithátturinn Kelly (kvk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls miðað við að nafnið sé borið fram Kellý. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá hefur eiginnafnið Kelly (kvk.) ekki áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og skv. vinnulagsreglum frá 14. nóvember 2006 þar sem engin kona er skráð með eiginnafnið Kelly sem uppfyllir umrædd skilyrði. Eiginnafnið Kelly uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Kelly (kvk.) er hafnað. Vegna þess máls hefur mannanafnanefnd ákveðið að úrskurða nafnmyndina Kellý (kvk.) á mannanafnaskrá sem eiginnafn.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum