Hoppa yfir valmynd
25. júní 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti laust til umsóknar: Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri - mynd

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september  2021. Auglýsingin hefur einnig verið birt á vefnum Starfatorg.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins, varasjúkrahús Landspítala og er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk.

Hæfniskröfur

Forstjóri skal hafa: 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er áskilin.
  • Mikla þekkingu á sviði heilbrigðisþjónustu.
  • Farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
  • Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Hæfni og reynslu til stefnumótunar.
  • Menntun og/eða reynslu á sviði verkefnastjórnunar og stöðugra umbóta.
  • Mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Metnað og vilja til að ná árangri.
  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli.

Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Hæfni umsækjenda verður metin af hæfnisnefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu. Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri,  [email protected] 

Umsóknir skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, í gegnum ráðningarkerfi ríkisins eða á netfangið: [email protected] eigi síðar en 12. júlí nk.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.07.2021

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Valdimarsdóttir - [email protected]
Kristín Helgadóttir - [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum