Hoppa yfir valmynd
24. október 2022 Innviðaráðuneytið

Útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs fyrir 2022 hækkuð um 400 milljónir

Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að hækka útgjaldajöfnunarframlög sjóðsins vegna ársins 2022 um 400 milljónir króna. Áætlað útgjaldajöfnunarframlag skv. A-hluta framlaganna nemur því 11.200 m.kr.

Áætlað framlag vegna B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga ársins nemur 575 m.kr. en í lok ársins verður úthlutað 175 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2022 umfram tekjur. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli.

Samtals nema því útgjaldajöfnunarframlög 12.000 m.kr. á árinu 2022.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum