Hoppa yfir valmynd
8. júní 2015 Heilbrigðisráðuneytið

Brautskráning frá Sjúkraflutningaskólanum

Heilbrigðisráðherra ásamt Ingibjörgu Guðmundsdóttur og Ólafi Stefánssyni
Heilbrigðisráðherra ásamt Ingibjörgu Guðmundsdóttur og Ólafi Stefánssyni

Útskrift Sjúkraflutningaskólans fór fram í hátíðarsal Háskólans á Akureyri síðastliðinn föstudag þegar útskrifaðir voru 237 nemendur sem stunduðu nám við skólann 2014–2015. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra var viðstaddur athöfnina og afhenti við þetta tækifæri byggðarlögunum Hrísey og Grímsey hjartastuðtæki að gjöf.

Ráðherra lýsti ánægju með starfsemi Sjúkraflutningaskólans sem annast menntun sjúkraflutningafólks á landsvísu. Hann lagði áherslu á mikilvægi starfa þeirra sem annast sjúkraflutninga og óskaði hinum nýútskrifuðu velfarnaðar. Hann sagði útskrift hóps vettvangsliða frá Grímsey og Hrísey sérstakt ánægjuefni, en ráðuneytið styrkti það nám sérstaklega.

Á meðfylgjandi mynd má sjá ráðherra ásamt Ingibjörgu Guðmundsdóttur vettvangsliða frá Hrísey og Ólafi Stefánssyni slökkviliðsstjóra á Akureyri sem tók við hjartastuðtækinu fyrir hönd Grímseyinga.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum