Hoppa yfir valmynd
15. júní 2023 Innviðaráðuneytið

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs heimsótti sveitarfélög á Suðurlandi

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs svetiarfélaga á ferðalagi sínu um Suðurland. - mynd

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga heimsótti nokkur sveitarfélög á Suðurlandi í síðustu viku. Sveitarfélögin sem nefndin heimsótti voru Sveitarfélagið Árborg, Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra.

Markmið ferðarinnar var að ræða við sveitarstjórnarfólk og starfsfólk sveitarfélaganna um stöðu og málefni sveitarfélaganna. Jafnframt var farið í vettvangsferðir þar sem stofnanir sveitarfélaga og fyrirtæki á svæðinu voru heimsótt

„Það er ánægjulegt að sjá þann mikla kraft sem er á samfélögunum á Suðurlandi. Víðast hvar er um kröftuga uppbygging innviða að ræða og afar jákvæða þróun tekna sveitarfélaganna með auknum umsvifum,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. „Sveitarfélögin glíma vissulega við ýmsar áskoranir og má þar nefna uppbyggingu nýrra íbúðahverfa vegna fjölgunar íbúa. Jákvætt er þó að það er af sem áður var að sveitarfélög börðust gegn fólksfækkun og byggðavanda sem því fylgdi. Við sjáum jafnframt að samvinna sveitarfélaga á svæðinu er með miklum ágætum og það var að heyra að hugsanleg yrðu sameiningarkostir ræddir milli sumra sveitarfélaga innan ekki svo langs tíma,“ sagði Guðmundur að lokum.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er einn af megintekjustofnum sveitarfélaga, en um 14% af skatttekjum sveitarfélaga koma frá sjóðnum. Til Suðurlands runnu alls 9 milljarðar króna úr Jöfnunarsjóði á síðasta ári.

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs er skipuð til fjögurra ára að afloknum sveitarstjórnarkosningum en í nefndinni sitja:

  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson, fv. oddviti í bæjarstjórn Akureyrar, formaður
  • Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar
  • Theódóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi
  • Dan Jens Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs Akureyrarbæjar
  • Hrund Pétursdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði
  • Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
  • Hörður Hilmarsson, skrifstofustjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar

Varaformaður nefndarinnar er Sigtryggur Magnason aðstoðarmaður ráðherra.

  • Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs svetiarfélaga á ferðalagi sínu um Suðurland. - mynd
  • Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs svetiarfélaga á ferðalagi sínu um Suðurland. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum