Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunarstörfum heiðrað á árinu 2021

Ljósmynd: WHO/G. Soupe - mynd

Um áratugaskeið hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað ár og jafnvel áratugi tilteknum málefnum í þeim tilgangi að vekja athygli á þjóðþrifamálum og hvetja til alþjóðlegra aðgerða. Nýhafið ár, 2021, er ár friðar og trausts, skapandi hagkerfis, heilbrigðis- og umönnunarstarfsfólks, ávaxta og grænmetis og útrýmingar barnavinnu, á vettvangi hinna ýmsu stofnana Sameinuðu þjóðanna.

Í frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) segir að óneitanlega sé viðeigandi að heiðra starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunargeiranum með því að helga þeim árið 2021. „Alþjóða heilbrigðismálaþingið ákvað á síðasta ári að gera það sem viðurkenningu við fórnfýsi starfsfólks í þessum geirum fremst í víglínunni í COVID-19 faraldrinum,“ segir í fréttinni.

Hins vegar er þetta ekki eina alþjóðlega árið á vegum Sameinuðu þjóðanna. FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun samtakanna hefur lýst 2021 alþjóðlegt ár ávaxta og grænmetis. Markmiðið er að vekja athygli á því hversu ávextir og grænmeti eru næringarrík og neysla þeirra heilsusamleg. Jafnframt er skorin upp herör gegn sóun á ávöxtum og grænmeti í fæðukerfinu.

Þá mun Alþjóða vinnumálastofnunin (ILO) beina kastljósinu að barnavinnu á alþjóðlegu ári upprætingar barnavinnu 2021. Sérstaklega er vakin athygli á því að COVID-19 faraldurinn ýti enn fleiri börnum á vinnumarkaðinn.

2021 er einnig:

Venjulega eru það eitt eða fleiri aðildarríki Sameinuðu þjóðanna sem leggja til að helga tiltekið ár ákveðnu málefni. Tillaga er síðan lögð fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Á hinn bóginn getur slíkt gerst á vettvangi einstakra stofnana á vegum samtakanna.

Eftirfarandi áratugir helgaðir málefnum hefjast 2021 og lýkur 2030:

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum