Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 27/2018 Úrskurður 18. apríl 2018

Mál nr. 27/2018                     Eiginnafn:      Ísdögg

                                                 

 

          

 

Hinn 20. apríl 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2018 en erindið barst nefndinni 22. mars.

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

-          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

-          Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

-          Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

-          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

-          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Ísdögg (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ísdaggar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ísdögg (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum