Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 67/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. febrúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 67/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120039

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 8. desember 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. nóvember 2022, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 3. nóvember 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í sjö daga. Hann hugðist ferðast einn hingað til lands í gegnum Finnland. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. nóvember 2022. Hinn 8. desember 2022 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Þá bárust kærunefnd frekari upplýsingar og gögn frá kæranda 10., 11., 16., 19. og 21. desember 2022 og 2. janúar 2023. 

III.      Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi lagt fram allar upplýsingar og gögn sem óskað hafi verið eftir. Þá hafi hann svarað spurningum starfsmanns sendiráðsins sem hafi hringt í hann. Þá hafi hann fengið tölvubréf þar sem óskað hafi verið eftir frekari upplýsingum og gögnum og hann hafi orðið við því. Hann hafi eytt um 28 þúsund indverskum rúpíum (e. rupees) en samt hafi umsókn hans verið synjað. Hann telur uppgefnar ástæður synjunarinnar ekki réttar. Í tölvubréfi frá kæranda, dags. 10. desember 2022, kemur fram að kærandi telji synjun umsóknar hans ósanngjarna. Hann hafi uppfyllt allar þær kröfur sem gerðar séu til slíkra umsókna en samt verið synjað. Í tölvubréfi sem barst frá kæranda, dags. 11. desember 2022, kemur fram að kærandi telji fyrstu ástæðu synjunarinnar ekki rétta. Hann hafi gefið það upp að ætla að koma hingað til lands sem ferðamaður. Hann hafi uppfyllt allar þær kröfur sem gerðar hafi verið til þess háttar ferðar og lagt fram öll umbeðin gögn. Önnur ástæða synjunarinnar sé einnig röng. Hann hafi lagt fram öll umbeðin gögn sem sýni fram á tilgang ferðar hans til Íslands og ferðaáætlunin skýri sig sjálf. Þá hafi hann verið búinn að borga flugmiðann. Þriðja ástæða synjunarinnar um efasemdir þess að kærandi muni yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkja Schengen-samstarfsins sé uppspuni sendiráðsins enda hafi hann gefið það út að ætla eingöngu að heimsækja Ísland. Í tölvubréfi frá kæranda, dags. 19. desember 2022, kemur fram að kærandi hafi lagt á sig mikið ferðalag til að nálgast vegabréf sitt og önnur gögn en hann hafi ferðast frá Goa til Mumbai og til baka.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a – h-liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru sem ástæða synjunar eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 2, 11 og 13 vegna synjunar á umsókn hans, þ.e. að rökstuðningur fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar hefði ekki verið veittur, þær upplýsingar sem veittar hafi verið um ferðaáætlun kæranda hér á landi hefðu ekki verið áreiðanlegar og þá væri rökstudd ástæða til að draga í efa ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkja Schengen-samstarfsins áður en vegabréfsáritun sem sótt hafi verið um rynni út. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins virðist kærandi ekki hafa óskað eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki vera fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hans hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að starfsmaður sendiráðsins hafi hringt í kæranda. Kærandi hafi greint frá því að ætla að ferðast einn til Íslands. Hann hafi ekki getað nefnt neina staði á Íslandi sem hann ætlaði að heimsækja nema Reykjavík. Hann hafi lagt fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands í gegnum vefsíðu VFS. Hann hafi greint frá því að vera ekki í vinnu en hafi verið að sækja um störf í Indlandi og muni mögulega sækja um nám í Hong Kong. Kærandi hafi notað vefsíðu til að sjá um flug- og hótelbókanir. Vefsíðan auglýsi að hún útbúi flugmiða, hótelbókanir og ferðatryggingar fyrir vegabréfsumsóknir. Ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun kæranda og búið hafi verið að afbóka hótelið. Ferðatryggingin sem hann hafi skilað hafi ekki verið á lista yfir samþykkt indversk tryggingafélög heldur frá þýsku tryggingafélagi. Kærandi hafi greint frá því að ætla dvelja í Reykjavík alla daga ferðarinnar. Eftir að hafa verið beðinn um að senda inn nýjar hótel- og flugbókanir hafi kærandi sent bókanir sem hægt hafi verið að staðfesta. Hann hafi sent inn bókun fyrir hótel í Keflavík sem hægt sé að afbóka allt að þremur dögum fyrir komudag. Taldi fulltrúi sendiráðsins ólíklegt að kærandi ætlaði sér að ferðast til Íslands og væri bókun á hóteli í Keflavík ekki í samræmi við yfirlýsingu hans í viðtali um að hann ætlaði sér aðeins að dvelja í Reykjavík. Það var mat fulltrúa sendiráðsins, í ljósi framangreinds, að umsókn kæranda skyldi synjað í samræmi við ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi hafi bókað flug og gistingu á vefsíðu sem auglýsir að hún útbúi flugmiða, hótelbókanir og ferðatryggingar fyrir vegabréfsumsóknir. Búið hafi verið af afbóka hótelbókun kæranda og þá hafi ekki verið hægt að staðfesta flugbókun kæranda þegar fulltrúar sendiráðsins hafi haft umsókn kæranda til meðferðar. Kærandi hafi vitað lítið sem ekkert um Ísland. Hann hafi ætlað að dvelja í Reykjavík allan tímann en hafi síðan sent inn nýja hótelbókun fyrir hótel í Reykjanesbæ. Þá er kærandi án atvinnu í heimaríki og samkvæmt bankayfirliti hefur hann takmörkuð fjárráð. Að mati kærunefndar er tilgangur ferðar kæranda hingað til lands talinn ótrúverðugur í ljósi framangreindra upplýsinga og þeirra gagna sem kærandi hefur lagt fram.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar, með vísan til framangreinds og uppgefins tilgangs ferðar kæranda hingað til lands, að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii-liður a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Sé því ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaðu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum