Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreindýrakvóti ársins 2020

Hreindýr - myndJohannes Jansson/norden.org

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2020 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1325 dýr á árinu, 805 kýr og 520 tarfa.

Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Fyrstu tvær vikur veiðitíma eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr svo að draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Í þessu sambandi er bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum. Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Auglýsing um hreindýraveiðar 2020


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum